Brautin


Brautin - 31.05.1929, Blaðsíða 2

Brautin - 31.05.1929, Blaðsíða 2
2 BRAUTIN m öTgJ 'PJ gg [cfa Þær eru komnar! Hver j ar? Ci garetturnar FOUR ACES (Pjórir ásar), sem er síðasta orðið í cigarettugerð. þær eru tilbúnar á nýjasta hátt af bestii sérfræðingum W.D. & H.O. WILLS, England. Revniö þær! iXoXQjri 'Agítpfc Pær lyrirlitnn. það er því miður alt of al- gengt hér, að sumir einstakiing- ar hafi fult í fangi með að verja hendur sfnar gegn árásum al- menningsdóma og áreitni. Óvandaður aimenningur leyflr sér að kveða upp, oft þunga dóma yfir bræðrum sínum og systrum í þjóðfélaginu, ef þeir eða þær lifa eða breyta öðru- vísi en fjöldanum þykir rétt vera. Einkum eru þetta stúlkur, sem eiga óskilgetin börn, sem verða fyrir hvað mestu að- kastinu. En nú skulum við ganga út frá því, að ekki sé rétt eða sæm- andi að geta börn, nema í lög- heiguðu hjónabandi. Hvers vegna sleppur karlmaðurinn þá æfin- lega með miklu betra móti frá almenningálitinu en stúlkan ? Sennilega er þó sekt hans engu minni, því venjulega mun það vera maðurinn, sem leiðir stúlk- una á glapstigu, en hún ekki hann. En hún, sem álitin er veikari helmingurinn, á að taka á móti öilu því lasti og rudda- skap, sem heildardómar al- menningsálitsins kveða upp. Maðurinn getur í rólegheit- um gengið frá einni stúlku til annarar, vélað þær og tælt, með fögrum loforöum, en engum efndum, því bæði fjöldinn og lögin bjálpa honurn til þess. Fjöldinn dæmir þá ekki, lög- in *kki heldur. Þeir geta sloppið frá öllum skyldum sfnum, þeir þurfa ekki að sjá börnum sínum farborða, nema að því leyti, sem þeir sjálfír vilja, fjölda margir láta bæja- og sveitafélögin um það. En stúlkurnar, þær fá dóm- ana ströngu og röngu, og bæja- og sveitafélögin skamta þeim úr hnefa, það sem stjórnimar álfta að þurfi til að ala upp heilbrigðan og sannan íslending. Stúlkan má sitja í þröngri, dimmri og rakri kjallarakompu, eða loftherbergi, yfir litla barn- inu sfnu. Hún verður að neita sér um öll lifsins þægindi, er nokkurn veginn ánægð geti hún goldið húsaleigu og keypt mjólk handa barninu sínu, þó hún hafi ekki stundum annað að borða, en »náðarmola af borði húsbænda sinna«. Fjöldi manna, sem kastar þungum steini á stúlkur þessar, veit ekki hvað hann gerir. Fæst- ir athuga sem skyldi, að þessar manneskjur eru gæddar við- kvæmri sál, hafa tilfinningar, sem hver annar, og svo mikinn næmleik, margar hverjar, að þær verða særðar djúpu sári yfir talsmáta fólks við þær, sem óviðkomandi mönnum kann að sýnast blátt áfram. Á þennan hátt getur stúlkan alls ekki dregið fram lífið til lengdar. Fyrstu mánuðina er hún neydd til þess, en hún get- ur ekki lifað á því, sem henni er úthlutað með barninu. Hún verður að fara að vinna. Og hvaða möguleika hefir hún til að vinna, þannig að hún geti haft barn sitt hjá sér og séð þvf farborða ? Tíðasta lausnin er að fara með barnið í vist. Og það get- ur verið gott stundum. En þeg- ar húsbændurnir eru vinnuharð- ir, hugsunar- og samúðarlitlir, þá verður það harla erfitt hlut- skifti, t. d. að vita hvern smá- snúning og kannske hvern bita og sopa talinn eftir, sem fer til að hlynna að barninu sínu, hlýtur að vera afar þungbært. Og dæmi eru til að stúlka, sem fór í vist með barn silt, þurfti sérstaklega að kaupa sápu til að þvo barnsfötin, þóhafðihún ekkert kaup fyrir vinnu sfna, annað en fæöi og húsnæði fyrir sig og barnið. Alþekt neyðarrúrræði er það, að þær gefa börn sín, oft ó- þektu fólki. Fjöldinn segir: »Já, hún var svei mér heppin, að barnið skyldi vera tekið, og meira að segja hjónin tóku það sem sitt eigið, svo stúlkan þarf ekki framar að skifta sér af þvf, því hjónin fengu eignarréttinn«. Og ekki ósjaldan heyrist, ef ógift stúlka missir barn sitt. »Hún má sannarlega þakka guði fyrir það að hann tók barnið hennar til sín«. Ef svo hjón í góðri stöðu í þjóðlífinu, missa barn sitt, seg- fjöldinn : »Ó, hvað það var á- takanlega sárt fyrir hjónin að missa einkabaruið sitt«. Fæstir munu hafa athugað samanburðinn á þessu tvennu. Stúlkan, sem missir einka- barnið sitt, hefir skömmu áður mist föður þess, fyrir fult og alt. Hún hefir séð öll fögru lof- orðin hans verða að engu, hún hefir séð loftkastalann sinn um heimili og hjónabandshamingju, að engu verða. Hún á að eins eftir forsmáða ást, ónot, kulda og skilningsleysi fjöldans. Og svö missir hún einkabarnið sitt lika. Barnið, sem hún elskaði eins heilt og nokkur gift kona getur elskað. Hversu óendanlega þyngra og erfiðara er það ekki, hlutverkiö ungu, óreyndu og ógiftu stúlk- unnar, heldur en hinnar móð- urinnar, sem ber sorgina sam- eiginlega með maka sinum, svo framarlega, sem með þeim ríkir samúð og skilningur. En samt segir fjöldinn að þessum sé vorkunn, en um- komulausa stúlkan á að þakka forsjóninni.

x

Brautin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.