Eyjablaðið - 26.09.1926, Blaðsíða 2

Eyjablaðið - 26.09.1926, Blaðsíða 2
EYJABLAÐIÐ Hreinar linur þeir sem enn ekki hafa greitt árstillag sitt í Sjúkrasjóð Verkamanna- fjelagsins, eru vinsamlega beðnir að borga það hið allrafyrsta. Þorbjörn Guðjónsson gjaldkeri — Kirkjubse Húsgagnaverslun Guðjóns Úlfarssonar STRANDBERGI hefir Avalt fyrirliggjandi stórt úrval af vönduðum og ódýruni húsgögnum. Svefnherbergis- og borðstofusett blómstursúlur frá kr. 10.00 Slólar fleiri teg. frá kr. 8.50 Hljóðfœrastólar Borð márgar gerðir og stœrðir frá kr. 20.00 Ýmislegt smávegis svo sem: Handklœðabreiti, Gardínustangir, Faiaheugi Nótnastatív og fl. — ódýrastir díyanar, barnakerrur og barnavagnar V ðskiftavinir mlnir og aðrir sem þurfa á ódýrum og hentugum bifreiðaflutningi að halda, snúi sjer til iSísla Gtinnsonar Sólbakka eða Brekku Til þess, i eitt skifti fyrir öll, að fyrirbyggja misskilningþeirra er skilja vilja, lýsir undirrituð ritstjórn yfir því: 1. Að blaðið fyigir stefnuskrá Al- þýðuflokksins á íslandi að því sem hún nær og að á meðan flokkur- iun heldur saman (socialdemokrat- ar og kommunistar) um stefnu- skráua, mun blaðið ekki gera greinarmun á vinstri og hægri armi fiokksins. 2. Að núverandi ritstjórn getur í öllum greinum verið ósátt. við andstöðublöðin, í öðru en því, að þau nefni ritstjórnendur kommunista, bolsjevika, eða öðrum þeim nöfnum sem þeim hefir tekist að gera óvinsæl meðal fylgifiska sinna. 3. Að enda þótt ýmsir flokks- biæður vorir nefni sig jafnaðar- menn, er okkur engin þökk í þvi nafni. Harðvítugir ihaldsmenn alt ofan frá „Verði“ og niður í „Skeggja haía nefnt sig þessu uafni og þóst vera jafnaðarmenn. Stappar nú nærri, að nafnið sje oiðið jafn- skaðlegt flokksbræðum vorum og þótt þeir nefndu sig íhaldsmenn. 4. Alþýðuflokkurinn er stjettar- flokkur verkamanna og fátækrar stritandi alþýðu til sjávar og sveita A okkur sem falið er að gegna trúnaðarstörfum flokksins, hvílir sú skylda, að láta hagsmuni þessarar stjettar og áhugamál hennar sitja í fyrirrúmi og hirða minna um þótt aðköst og svíviið- ngar borgarablaðanna, á okkur persónulega, sje látið ósvarðað. 5. Að okkur hvailar aldrei sú fjarstæða að nokkurt blað gel.i verið ritað svo ölium líki og okkur hefir heldur aldrei til hug- ar komið, að auðborgarar þessa bæjar eða annara, aðhyllist alment þá stjórnmálastefnu, sem Alþýðu- flokkurinn hefir markað. Bað er víaindaleg staðreynd, að stundar- hagsmunir borgaranna, eru ílang flestum ati iðum, sá megin igrund- völlur, 2sem stjórnmálaskoðanir þeirra byggast á. fótt staðhœfa megi, að almenn sameign fram- leiðslu og verslunar, sje í framtíð- inni, eina lausnin á núverandi ófarnaðar ástandi og jafnt i þágu ríkra manna sem snauðra, munu auðborgararnir, þó ekki væri nema af ótta við yfirgangstímabilið (byltinguna), berjast með hnúum og hnefum gegu verkamönnum og kröfum þeirra. 6. Að við álítum ósæmilegt að draga einkalíf manna inn í hlnar opinberu deilur. Vestmannaeyjum 25. sept 1926 ísleifur Högnason, Haukur Björnson, Jón Rafnsson Rafstöðin. Um hana heflr verið töluvert deilt í seinni tið. Kunnur íhalds- maður hjer f bœ hefir ritað ádeilu greín í „Skeggja11 (frjálslynda blað- ið) á rekstur stöðvarinnar frá byrj- un, en þó sjerstaklega á reiknings uppsetningu rafmagnsnefndar. Þeir bæjarstjóri Kr- Olafsson og Jón Hinriksson, kaupfjelagsstjóri hafa nýverið rannsakað hag stöðvarinn- ar og gert upp efnahagsreikning hennar við síðastliðin áramót. Hafa endurskoðendur bæjarreikn- inganna samþykt reikningsuppsetn- ingu þeirra og bæjarstjórn sömu leiðis. Sýnir reikningur þessi, að stöðin með öllu taugakerfi og ágætlega endurnýjuð, stóð bænum um síðustu áramót í röskum 50 þús. krónum. Verðmæti stöðvar- innar, eftir núverandi verðlagi má óefað reikna 150.000 krónur. „Eyjablaðið" hefir leyft bœjai- stjóra rúm fyrir svar við ádeilu- grein „Skeggja", enda má fullyrða að bæjarstjóri hafi i máli þessu unnið alþýðu manna þarít verk, er hann meðal annara bæjarfulltrúa hindraði íhaldsmenn, í að rafstöð- in yrði seld einsLöku gióðrafjelagi á leigu um 20 ára skeið. Svarl og rautt. Einoknn? Sagt er að Gísli Johnsen hinn frjálslyndi hafi neitað bæjarbúum um kol, þó peningar væru í boði Samtímis sendir hanAtil Stokks- eyrar mótorbát fermdan ko)um. Lýsir þetta, hínni alkunna um- hyggjuhansfyrír Vestmannaevjabæ. Vegna yfirvofandi kolaleysis í bænum er Johnsen byrjaður aftur að selj.i kol, moð uppsettu verðí. Nemur sú hækkun tveim krón- um á skpd. Hvað mundi þetta hafa verið kallað á einokunartímunum? Kvlttun. Um væntanlega útkomu „Eyja blaðsins" farast „Morgunblaðinu" i Reykjavík þannig oi ð: . . . Ekki hreinkast Vostmana eyjar ef blaðið verður á sömu lund og fjelagi þess hjer í Rvík. Rjett til getið Moggi sæll. Vertu óhræddur. A „litlu húsunum" muntu altaf velsjeður gest.ur og síst ætlar „Eyjabiaðið" ;\ð gerast meðbiðill þinn til skítverkanna. Minnisblað Prentsmiðjan hefir nú kotnið sjer fyrir og getur tekið til prentunar: — Aðgöngumiða einfalda og tvöfalda — Boðs og tilkynningakort — Brjefsefni — Erfiljóð — Firmakort — Fylgibrjef — Glasamiða — Gluggauglýsíngar — Grafskriftir — Götuauglýsingar — Happdrættis miða — Kransborða — Kvittanir — Lyfseðla Nafnspjöld Nótubækur ! — Orðsendingar — Reikninga — Smjör og brauðseðla — Umslög | — Vixla — Rakkarkort — Binggjalds og uppboðsseðla — Bæknr — Timarit — Verðskrár — Skýrslur og reikninga — Blöð og alt annað er að prentverki lýtur; einlitt, tvilitt þrílitt silfrað og gylt, greið skil. Umbúðir þær er prentsmiðjan kom í hingað eru til sölu Einnig allskonar bækur, gamlar og nýjar 2 drengir 15—16 ára óskast, til prentnáms — Þeir þurfa að hafa hlotið betri einkuu við b vrnaskólann. Skriflegt tilboð ásamt læknisvott orði, sendist fyiir 1. okt,. — Stúlka óskast, Tilboð sendist fyrir 1. okt Prentsmiðja Guðjónsbræðra Heimagötu 22-Sími 163-Símnafn „Guðjónsbræður"

x

Eyjablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/646

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.