Eyjablaðið - 26.09.1926, Blaðsíða 3

Eyjablaðið - 26.09.1926, Blaðsíða 3
EYJABLAÐIÐ Bifreiðaraksiur Símfregnir F. B. frá 17. tll 24. sept. Erlendar: Róm: Yegna æsinga í ítalíu í gai'8 Frakka, hefir franska stjórnin skipað svo fyrir að sex herdeildir verði sendar til ítölsku landatnæranna. (Fyrir skömmu var gert banatilræði við Mussoline. Facistar í ítaliu hjeldu því fram að ítalskir landflóttamenn í Frakklandi ættu upptökin, og kröfðust framsals þeirra af frönsku stjórninni. Franska stjórnin neitaði, og er þetta orsök ofangreindra atburða.) K.hfifn: Símfregnir frá Genf og Berlín herma pólitískan samdrátt milli Pjóðverja og Frakka. Spánn og Uruguay (Suður-Ameríka) hafa sagt sig úr þjóðabandalaginu. Phlladelfla: Dempsey heimsmeistari í hnefaleik hefir tapað titlinum í hendur Genetumey. öenf: Afvopnunarnefnd Alþjóðabandalagsins hraðar undirbúningi undir afvopnunarráðstefnu, svo að hægt verði að halda ráðstefnuna fyrir septemberþing bandalagsins að ári. París: v Hraðlestin til Lyon missir 3 vagna úr lest, en næsta lest á eftir rekst á þá; 9 menn biðu bana en 27 særðust. Innlendar: ísafjðrðar S4/o Snjókoma í dag. Síldveiði mikil í reknet á Steingrímfirði. Bátar hjeðan stunda þar veiðar með góðum árangri. Kjötverð 90 aura til ein króna kg. Reykjarik zo/» Hjeðinn Valdimarsson og Sigurjón A. Ólafssou verða í kjöri af hálfu Alþýðuflokksins í Reykjavik við kosningu á tveim þingmönnnm fyrir Reykjavík, íyrsta vetrardag næstkomandi. __________ l Þeir sem þurfa á hentugum og ódýrum bifieiða- — fiutningi að halda, ættu að snúa sjer til — cfráls Crlingssonar bílstjóra — Ráðagerði Rafstöðín. Eins og auglýst var 8. júní s. 1. lækkar verðið á rafmagni eftir næsta aflestur, sem byrjar um þessi mánaðarmót. Eftir það er raf- magnsverðið kr 1.00 fyrir hverja kwst. til Ijósa og kr. 0.45 hver kwst. til iðnaðar. RAFSTÖÐIN. Umboðsmaður Ölgerðarinnar „EGILL SKALLAGRlMSSON" og Saft og bvjóstsykursgerðarinnar „n ó r Reykjavík, er hér L. J. JOHN8EN Styðjið inlendan iðnað! Kaupið innlendar vörur! Málaflutningsstörf allskonar, svo sem málaflutning, innheimtur, samningagerðir, kaup og sölu fasteigna, tökum við undirritaðir að okkur. Fyrst um sinn til viðtals á Velli kl. 1—3 og 5—7 e.h Vestmannaeyjum 25. sept. 1026 Adolph Bergsson Hendrik J. S. Ottóson cand. juris. Góðar og ódýrar kartöflur útvega jeg beint frá jóskum bændum. Beir sem vilja fá sjer kartöflur þaðan, fyrir veturinn ættu að tala við mig fyrir 30. þessa mánaðar. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON ____________________ Hvanneyri Sú sorgarfregn barst um bæínn síðastliðin mánudag að Kristín Árnadóttir húsfreyja á Brekku hefði andast á heimili sínu þá um daginn. Banameinið var hjartaslag, en undanfarnar 3 vikur hafði hún legið i lungnabólgu. Er að Kristínu hin inesta eftir- ; sjá, var hún gáfuð kona sköru leg og prúðmannleg í allri fram- komu. Skófatnaður Allur skófatnaöur vsrÖur seldur með niðursettu verði gegn peningagreiðslu 15—30 prósent afsláttur til mánaðarmóta. — Ennfremur hefi jeg ódýran olíufatnað, sem selst með miklum afslætti. Benedikt Fridriksson.

x

Eyjablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/646

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.