Samtíðin - 01.07.1942, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.07.1942, Blaðsíða 15
SAMTlÐIN 11 ESTER RIWKIN: R ö k FYRIR UTAN gráleitar glugga- í'úður kaffihússins sáust skugg- ar, sem liðu upp í loftið og hurfu. Jæja, er liann kominn aftur? — Já, það er langt síðan. — Hvað starfar hann núna? — Það veit enginn. Tómas Hall liorfði forviða á æða- berar liendurnar á sér og hlustaði agndofa á samlalið, sem fór fram við næsta horð. Tóbaksreykurinn leið upp i loftið, þar sem lýsandi hnettir snerust og helltu geislaflóði sínu vfir auðn liins yfirfyllta veitingasals. Samtalið við nágrannaborðið harst aftur að evrum Tómasar Hall gegn- um glamrið í bolluni, diskum og bökkum. Hann býr einhvers staðar við Bellmansgötuna....... — Það var vist orðið fullkomið hneyksli, láður en Johnny Asker fór . . Hávær og ósvífnisleg rödd ókunn- ugs manns vogaði sér að nefna þetta nafn, sem rélt aðeins mátti hvisla nieð sársauka og gremju. Tómas Hall varð gripinn dulinni heift, stóð upp og fór. Johnny Asker var þá kominn aftur .... Tómas Hall liafði i fyrsta sinn heyrt nafn hans af vörum konu sinn- ar. Einn góðan veðurdag hafði hún tekið hlíðlega í hönd honum og sagt: - Ég elska hann. Þegar liún sagði elska, haí'ði hún misst valdið á rödd 99. saga Samtíðarinnar k u r sinni. Ilún fyrirvarð sig fyrir að nefna þetta orð. Það var allt of við- lcvæmt og hversdagslegt í sambandi við jafn alvarleg reikningsskil og hér var um að ræða. Augu Dísu, sem voru fagurblá í dagsbirtu, dökknuðu og stækkuðu, er kvelda tók. Augun lágu djúpt, en :á kvöldin virtust þau sökkva enn dýpra. Hún hélt í hönd hans. Hið þunna, svarla hár hans lafði niður á enni, rétt eins og það væri volt af regni. Hinn granni lik- ami hennar var fjaðurmagnaður, og munnúrinn, sem oft var opinn, var nú samanbitinn og har vott uin beiska alvöru. — Þú verður að gera þér það ljóst, Tómas, hve mikils ég met þig, og hve örðugt ég á með að segja nokkuð, sem særir þig. Mér þykir óendanlega vænt um þig og vil þér að öllu leyti vel, en hugur minn er allur hjá hon- um. Það er óhugsandi, að ég geti verið hjá þér og látið þig bera mig á örmum þér, þegar ég elska hann. Ég get ekki kysst þig með mynd annars manns fyrir hugskotssjónum mér. Ef til vill verð ég óhamingjusöm, en liann seiðir mig til sín með ómót- stæðilegu afli. Þú verður að reyna að skilja þetta, Tómas. Þú getur reitt þig á, að ég gleymi aldrei góðvild þinni. — Ég skil, muldraði Tómas og botnaði ekki neitt í neinu. Hann reikaði út á götu, ráfaði þar

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.