Samtíðin - 01.07.1942, Page 31
SAMTÍÐIN
27
ir. Þetta er spakmælasafn mikið —
samtals 3359 orðskviðir — sem GuS-
mundur liefur verið að viða að sér
um mörg undanfarin ár, og fvlgir
skrá um fyrirsagnir spakmælanna,
sem flokkuð eru eftir efni, ásamt
höfundaskrá. Óhemjumikið starf
hefur það verið að tína saman allan
þennan fjölda spakmæla, og kemst
höf. svo að orði um það í eftirmála
bókarinnar: „Efnið í bók þessa er
tínt saman úr íslenzkum og erlendum
tímaritum, blöðum og hókum. Eru
höfundar, sem vitað er um, taldir í
skránni. Heimildarrit slcipta mörg-
um tugum og verður þeirra elcki get-
ið hér. Þó að hér sé samansafn af
orðskviðum, málsháttum og ýmiskon-
ar snilliyrðum, getur það heyrt undir
orðið spakmæli. Þótti því rétt að gefa
bókinni það lieiti.“
Aðrar þjóðir eiga sér margar hverj-
ar viðlíka spakmælasöfn og liér er
um að ræða. „Samtíðin“ hefur viljað
færa lesendum sínum nokkurn skerf
þess snjallasta, sem hugsað og ritað
hefur verið ýmist hér eða erlendis,
og hefur því hér í tímaritinu um all-
langt skeið hirzt allmargt af því tagi
á bls. 31 undir fvrirsögninni: Þeir
vitru sögðu. Þelta hefur af fjölmörg-
um lesendum ritsins verið mjög
þakksamlega þegið. Að því athuguðu
má vænta ])ess, að hinu mikla spak-
mælasafni Guðmundar Davíðssonar
verði af öllum þorra hugsandi manna
lekið tveim höndum. Það er mikill
kostur við þessa hók, fvrir ræðu-
nienn, kennara og aðra, er að stað-
aldri munu nota hana, að öll spak-
niælin eru flokkuð eftir efni og er því
livað eina, sem nota þarf, fljótfundið.
Pjóðfræg
vörumerki:
Tip Top-þvottaduft
Mána-stangasápa
Paloma — óviðjafnanleg
handsápa.
Vélaverkstæði
Sigurðar
Sveinbjörnssonar
sími 5753, er flutt af Laugaveg 68
í hið nýja verkstæðispláss sitt á
horni Skúlagötu og Mjölnisvegar.
Verkstæðið framkvæmir vélsmíði,
svo og viðgerðir á verksmiðju-
vélum og mótorum.
SIGURÐUR SVEINBJÖRNSSON,
Sími 5753.