Samtíðin - 01.10.1950, Blaðsíða 28
24
SAMTÍÐIN
ur hann að gera til að ýta þeim í
tapaðan kontrakt. Konstam tekur því
þann kostinn að segja 2 Spaða á
þrílitinn, en slikt er algengt hjá stór-
meisturum erlendis, þó að flestir ísl.
meistararnir þekki varla slika „leiki“
og telji þá jafnvel fyrir neðan allar
hellur. Við 2 Sp. sagði Vestur pass
og N. pass. (Ýmsir hefðu e. t. v.
sagt 3 eða 4 Spaða, sem auðvitað
liefði verið mjög barnalegt). Austur
sagði nú 2 Grönd, en nú sagði Norður
3 Spaða og hinir pass. Drspilið hjá
Konstam sýnir mjögvel snilli hans og
er áreiðanlega mjög lærdómsríkt
fyrir alla og ekki sízt „meistarana".
Vestur spilaði út lágu Hjarta, sem
A. tók með ás. A. taldi gagnslaust að
spila H. aftur, því að hann áleit, að
spilarinn ætti aðeins eitt H. og væri
því réttara að nota innkomuna til
að spila Tígli í gegnum spilarann.
Konstam lét lágspil og V. tók með
Gosa. Nú lét V. út Sp. 2, sem hann
taldi meinlaust. A. lét kónginn og S.
ásinn. Þessu næst spilaði Konstam út
Laufi og fékk á K. í borði, en síðan
Spaða úr horði og tók liann þar með
eina fría útspilið af Vestur. Næst
spilaði Suður Lauf-D og Vestur tók
með Ás og lét út Gosa, en Konstam
drap ekki í borði, heldur gaf niður
Tígul 10 og eftir það var sama, hvað
Vestur gerði, Suður átti alla slagi,
sem eftir voru.
Spil þetta er mjög vel spilað hjá
Konstam, og það leynir sér ekki, að
þarna er það snillingur, sem á heldur.
Tilkynnið „Samtíðinni", ef þér hafið bú-
staðaskipti og forðizt þannig vanskil.
Orðsending
frá
Hjctakútimi,
Bergþórugötu 2.
Ávallt eitthvað af vefnaðar-
vörum og- barnafatnaði.
Daglega teknir frant dörnu-
kjólar.
Hjctabúlih
Bergþórugötu 2.
liaíais birta
er hest.
Framkvæmum raflagnir
og breytingar í verk-
smiðjur, hús og skip.
Lf
Raftækjavinnustofa og
verzlun.
Vesturgötu 2. Sírni 2915.
Símnefni: Rafall.