Samtíðin - 01.03.1955, Page 11
SAMTÍÐIN
7
sameiginleg áhugamál, að þau nægi
sem menningarlegur grundvöllur í
hjónabandi okkar?
10. Fellur mér svo vel við fjöl-
skyldu lians, að ég geti þolað hana?
Ef ég get það nú ekki, hef ég þá
nokkra vissu fyrir, að ég verði ekki
neydd til að vera samvistum við
hana?
Þér kunna að finnast sumar
þessar spurningar broslegar og
næsta ótímabærar. En hugsaðu þig
betur um, áður en þú virðir þær að
vettugi. Það er alltaf nytsamlegt að
hugsa um sjálfa sig og aðra. Maður
verður vitrari á því. Sú kona, sem
lætur alltaf tilfinningarnar ráða
gjörðum sínum, á sér ef til vill auð-
ugra líf fjrrir bragðið. En það sakar
aldrei að láta dálitið af skynsemi
vera með í ráðum. Hún getur komið
í veg fyrir mörg óhöpp, mundu það.
★ Athugaðu vel, hvaða litir
klæða þig bezt
Blátt er sá litur, sem auðveldast
er að klæðast. Taktu eftir, hve marg-
ir einkennisbúningar eru bláir
(sennilega þó ekki af því að þeir
fara bezt!). Taklu einnig eftir því,
að blátt klæðir flesta vel. Af bláum
litum, sem eru til i mörgum blæ-
brigðum, er öruggt, að stálblátt og
dökkblátt klæðir okkur vel.
Næst bláu er brúnt sá litur, sem
Vel klædd
kona kaupir hattana hjá okkur.
HATTAVERZLUN ÍSAFOLDAR H.F.
Bára Sigurjónsdóttir,
Austurstræti 14. Sími 5222.
flestum fer vel. Langflestar konur
geta fundið brúnan lit, sem fer þeim
ágætlega, en litaval er sannarlega
hvergi nærri fyrirhafnarlaust. Við
verðum að þreifa okkur lengi áfram
í þeim efnum. Það er algild regla,
að dökkhærðar konur eiga að velja
sér millibrúnán lit, en forðast ljós-
brúnt, sem er allt of áþekkt litar-
iiætti þeirra. Þær mega ekki held-
ur velja sér allt of dökkbrúnan lit,
sem gerir það að verkum, að þær
sýnast óhreinar i framan. Svipuðu
máli gegnir um grænt.
Svart er vinur allra kvenna, ef
ekki er farið út í öfgar i vali þess
litar. Svart lætur mann sýnast eldri
en maður er, nema áhrif hans séu
rofin með öðrum sterkum lit eða
hvítu uppi undir andlitinu. Svartur
litur missir aldrei marks og er aldr-
ei hjákátlegur. Hann gerir það að
verkum, að við sýnumst grennri, ef
ekki er um gljáandi efni að ræða
eða það er alsett „paléttum“. En
svart getur verið leiðinlegt og ömur-
legt, ef liturinn er notaður alveg
skefjalaust.
Rauður litur krefst mikils. Ætlir
þú að velja hann með öruggum
árangri, verður þú að vera gædd
mjög öruggum litarsmekk. Þú skalt
ekki velja rautt nema að litlu leyti,
ef þú ert ekki alveg viss um litaskyn
þitt, nema þú teljir þig mega vel við
því að stíga örlítið víxlspor. Sama
máli gegnir um gulan lit, nema hvað
hann er enn hæpnari en rauður.
Svo að lokum þetta: Það er því
miður allt of algengt, að fallegir lit-
ir á fötum séu í innbyrðis ósamræmi
og fari því mjög illa saman. Allt