Samtíðin - 01.03.1955, Síða 20

Samtíðin - 01.03.1955, Síða 20
16 SAMTlÐIN „Þefaðu svo líka af hökutoppnum á mér,“ sagði hann og lyfti höfðinu, svo að nýstrokna, hvíta skyrtu- brjóstið kom i ljós. Kisa þefaði einhver ósköp. „Rjómi,“ sagði hún hugfangin. Og áður en hún hafði áttað sig á því, livað hún var að gera, hafði hún rétt út úr sér tunguna og sleikt agn- arlitla dropann, sem hékk enn þá i skegginu á honum. Hún hló í af- sökunartón. „Ég elska rjóma, en við fáum hann aldrei heima. Aflur á móti hafði einu sinni hellzt ögn af hon- um í göturæsið“ ... „I göluræsið," sagði Janus og fitj- aði upp á trýnið. „Heyrðu nú. Nú ætla ég að bjóða. Fyrst étum við eina eða tvær mýs, og síðan lepjum við svolitla rjómalögg af undirskál. Lízl þér ekki vel á það? „Það er naumast þér eruð rausn- arlegur! En eruð þér viss um, að við getum veitt mýsnar?“ „Veitt? Þær koma nú hara, þegar ég kalla á þær. Þeim þykir nú al- deilis varið i, að ég skuli éta þær. Mýs gera sér undarlega mikinn mannamun. Og livað rjómann snert- ir, er enginn vandi, þegar maður á sér aðra eins vinkonu og veitinga- konuna i „Sæstjörnunni“. Ef yður langar með okkur, ungi maður, þá er það guðvelkomið!“ Mons nöldraði lítið eitt, sem bæði gat þýtt já og nei, en engu að síð- ur þrammaði hann með þeim inn í húsagarð „Sæstjörnunnar“. Janus hvæsti og hremmdi í sömu svipan heilan hóp af músum. Og ekki hafði hann fyrr rekið upp mjálm en veit- ingakonan kom út í nátttreyju með rjórna á undirskál. „Það er aldrei það er veizla að tarna,“ sagði Kisa og drap tittlinga af einskærri hrifningu. „Já, svona hef ég komið því fyr- ir,“ svaraði Janus. „Veitingakonan heldur, að hún eigi mig, en í raun og veru er liún ekkert annað en eldabuska hjá mér. Fólk getur ver- ið broslegt. En hún er seig við að hitta á það, sem mér þykir gott. I gær fengum við t. d. fisk.“ „Fisk, og hann er nú að heita má alveg ófáanlegur um þessar mund- ir. Maður skyldi halda, að fiskkaup- maðurinn vildi alls ekki af honum sjá.“ „Ef ég man rétt, liggur enn þá sildarhaus bak við kgssann þann arna, ef ungfrúin skyldi hafa lyst á honum.“ „.Tá, en — ætlið þér ekki að borða hann sjálfur á morgun?“ anzaði Kisa og leit niður fyrir sig. „Nei, á mox-gun eru nú dúfur á matseðlinum.“ Nú var Mons nóg boðið. Hann var fátækur hjólhestakaupmannsköttur. Húsmóðir lians var auk þess jurta- æta. Rjómi, síld og dúfur! Hárin risu á hryggnum á honum. „Komdu,“ sagði hann og ýtti við Kisu. „Ég nenni ekki að hlusta leng- ur á grobbið í þessum gamla, sköll- ótta bjálfa.“ „Lofaðu ungfrúnni sjálfri að úr- skurða, hvor okkar er meiri bjálfi,“ sagði Janus þreytulega og bar aðra framlöppina fyrir sig. „Ivomdu, ef þú þorir!“ öskraði Mons. „Hér séx-ðu kamb í í'jóma-

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.