Samtíðin - 01.03.1955, Blaðsíða 25
SAMTÍÐIN
21
hana bænaraugum, en hún er hin
versta. Gengur til hans og stjakar
við honum): Farðu, segi ég!
Hann (stígur yfir þröskuldinn,
en hún skellir hurðinni i lás mjög
liarkalega): Farðu!
(Gengur inn í stofuna. Stendur
andartak kyrr, en áttar sig brátt,
rýkur til dyra og opnar hurðina).
Hún: Svenni! Elsku Svenni!
(Hann er kominn niður í gang, en
þegar hann heyrir hana kalla, snýr
hann skjótlega við og hleypur upp
stigann í fáeinum skrefum. Hún
kastar sér í faðm hans og strýkur
hár hans í hnakkanum).
Hún: Elsku vinur, ég meinti þetta
ekki. —- Þú veizt, að ég elska þig svo
mikið, að ég tími ekki að sjá af þér
eina mínútu hvað þá meira.
Hann: Elsku Stina mín, ég veit
það. Ég skil þig. (Þefar úr hári
hennar). Ég veit, að þú ert skynsöm,
og ég elska þig líka — en nú verð
ég að fara.
Hún (Losar sig úr faðmi hans og
þurrkar tár af hvörmum sér):
Flýttu þér, ástin mín, svo þú verðir
ekki of seinn.
„Ertu aldrei veikur núna, Júnki?“
„Nei, nýja konan mín er mótfall-
in veikindum."
„Hvernig þótti þér ræðan hjá
mér?“
„Alveg prýðileg. Um hvað talað-
irðu annars?“
WEGOLIN
ÞVÆR ALLT
HREINLÆTISTÆKI:
baðker, — handlaugar, — salerni.
HITUNARTÆKI:
miðstöðvarkatlar, — miðstöðvar-
ofnar,— eldavélar,— hráolíuofnar.
★
Pípur og fittings
Lokur alls konar
Byggingarvörur
Járn- og trésmíðaverkfæri
★
ATH.: Allt til hita-, skólp-
og vatnslagna.
A. Jóhannsson & Smith h.f.
Pósthólf 873. Símnefni: AJOSMI
Bergstaðastrœti 52. Sími 4616.
HAIMSA-sólgluggatjöld
hafa verið notuð hérlendis undanfar-
in 8 ár. Kynnið yður verð. —
H A N S A HF.
Laugaveg 105, sími 81525.