Samtíðin - 01.03.1955, Blaðsíða 30
26
SAMTÍÐIN
Výjar erletujat bœkur
GYLDENDAL í Khöfn hefur sent
okkur þessar bækur:
En mosaik af moderne dansk lit-
teratur. Ved Sven Moller Kristensen.
Bók þessi, sem m. a. er ætluð skóla-
fólki, geymir sýnishom af dönskum
bókmenntum frá 1917 til 1953 og
sýnir gróandann í þeim seinuslu ár-
in. Undarleg ráðstöfun er það af
próf. S. M. Kristensen að birta sýn-
ishorn af verkum sama manns á
fleiri en einum stað í bókinni. 312
bls., ób. d. kr. 14.50.
Ruth Moore: Ben, Sten og Ár-
tusinder. Hér er i mjög aðgengilegu
lesmáli sagt frá vist mannkynsins á
jörðinni bæði i ljósi eldri kenninga
og einkum rannsókna síðustu ára,
er varpáð hafa nýju ljósi á viðfangs-
efnið. Bókin cr prýdd fjölda mynda.
404 bls., ób. d. kr. 29.75, íb. 37.50.
André Maurois: Hjertet tager aldrig
fejl. Maurois hefur með þessari ævi-
sögu frönsku skáldkonunnar George
Sand skapað mjög breiða lýsingu á
rómantískri kynslóð skálda og ann-
arra listamanna, sem söfnuðust um
hina sterku og sérkennilegu konu.
Við þekkjum ýmis þessara nafna:
Chopin, Liszt, Musset, Balzac og
Flaubert. Höfuðstyrkur bókarinnar
er allur sá fjöldi bréfa og dagbækur,
sem ekki liafa áður verið bagnýttar.
Maurois hefur tekizt prýðilega að
láta bréfin tala og tengja þau saman.
373 bls., ób. d. kr. 25.75, ib. 43.50.
Bendið vinum yðar á Samtíðina. Munið:
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 krónur.
Höfurn ávallt
fyrirliggjandi
fyrsta flokks
barna- og
kvenfatnað
Verðið
rmög
hagkvœmt.
VERZLUNIN
EROS
Hafnarstræti 4.
Sími 3350.
LÍFTRYGGINGAR
BRUNATRYGGINGAR
SJÓTRYGGINGAR
FERÐATRYGGIN GAR
ÁBYRGÐARTRYGGINGAR
V átryggingar skrif stof a
Sigfúsar
Sighvatssonar h.f.
Lœkjargötu 2 (Nýja Bíó).
Símar 3171, 82931.