Samtíðin - 01.09.1962, Blaðsíða 16
12
SAMTÍÐIN
>f >f >f Nú fyrst nýt ég mín
segir £cpkia £cmt ▼
HVAÐ HEFUR komið fyrir Sophiu Lor-
en? spyr fólk um víða veröld.
Hún sjálf hefur svarið á reiðum hönd-
um:
„Nú fyrst nýt ég mín. 'Nú er ég orðin
fullþroska.“
Þetta er vafalaust rétt, svo langt sem
það nær, en sannleikurinn er sá, að Sophia
hefur gert uppreisn gegn sjálfri sér og þó
einkum gegn Hollywood. Henni nægir
ekki lengur að vera „kynhvatastjarna á
færibandi“ í mynd eftir mynd. Hún vill
fá að neyta leikhæfiléika sinna. Þeir, sem
séð hafa Sophiu í kvikniyndinni „Iíven-
tígrisdýrið“, eru ekki í neinum vafa um,
að nýr áfangi er hafinn á leikferli hennar.
1 þessari mynd fer hvort tveggja saman:
áhrifamikil og hcilsteypt atburðarás og
frábær persónusköpun fullþrbska konu,
sem leikur af innlífun og eldmóði.
Ef við skyggnumst tæp þrjú ár aftur í
tímann, er viðhorfið þannig: Amerískir
kvikmyndahöldar Iiafa komið auga á
Sophiu, sem er tæpra 23ja ára gömul.
Þeir eru stórhrifnir af fegurð hennar og
kynþoklca og eygja undir eins möguleika
á að tefla henni af Ameríku hálfu gegn
Brigitte Bardot!
Sophia fór til Hollywood og lék þar um
skeið, en árangurinn varð lakari en til
var ætlazt. Ekki vantaði, að hún væri
auglýst. Auk þess voru henni ýmist fengn-
ir frægir eða með öllu óþekktir mótleik-
arar, og sjálf gerði hún, livað hún gat.
En allt kom fyrir ekki. Leiftrun brá að
vísu fyrir í leik hennar, svo að menn sann-
færðust um, að hún gæti meira en heill-
að karlmenn með því að spóka sig í stutt-
um og flegnum kjólum í kvikmyndun-
um. En jafnvel maður hennar, Italinn
Carlo Ponti, varð að viðurkenna, að hún
myndi ekki eiga sér framtið i Hollywood.
Sophia hélt því heim til Italíu. Þar
höfðu henni hoðizt hlutverk, að vísu ekki
stór, en engu að síður mikilsverð, eins og
á stóð. Nú reið á að sýna, að hún væri
einhvers megnug.
Rúmlega hálfu öðru ári áður en þetta