Morgunn - 01.06.1946, Blaðsíða 11
Dáleiðsla.
Eftir Einar Loftsson.
Árið 1932 kom út í Englandi bók eftir einn nafnkunn-
asta og merkasta dávald nútímans, Alexander Erskíne.
Bók þessi barst mér fyrst í hendur á þessu ári og er ég
hafði kynnt mér efni hennar, afréð ég að segja yður frá
nokkrum atriðum úr reynslu Erskine og kynna yður jafn-
framt skoðanir hans á þessum málum og niðurstöðuálykt-
anir hans. Enginn, sem áhuga hefur fyrir sálarlífsrann-
sóknum og sálrænum fyrirbrigðum getur talið sér dá-
leiðsluvísindin óviðkomandi. Rannsóknir á þessum málum
hafa valdið byltingu í sálarfræðinni og auðgað menn mjög
að mikilvægri þekkingu á vitundarlífinu og starfsemi þess.
Erskine hefur iðkað dáleiðslu um tugi ára og náð undra-
verðum árangri í starfi sínu, og rannsóknir hans og ann-
arra samverkamanna um víða veröld hafa ennfremur sann-
að og sýnt, að með dáleiðslu er unnt að veita mönnum mik-
ilvæga hjálp og lækningu við ýmsu því, er lcemur fram
sem truflun á starfsemi vitundarlífsins, veldur lömun í
líffærastarfsemi líkamans, vonleysi og örvænting, geðbil-
un 0g vitfirring, er oft getur leitt til sjálfsmorðs. Með
þetta tvennt í huga hefur hann mjög gert sér far
um að hafa náið samstarf við lækna og sérfræðinga á
sviði þeirra vísinda, haldið fjölda fyrirlestra í félögum
þeirra og framkvæmt að þeim viðstöddum aðgerðir sinar
á ýmsum þeim sjúklingum, er þeir hafa valið til rannsókna.
Nokkurar andúðar og efagirni kenndi í fyrstu gagnvart
1.