Morgunn - 01.06.1946, Blaðsíða 43
MORGUNN
33
Yfirlit.
Eftir J. Arthur Hill.
Hinn alkunni og ágæti sálarrannsóknamaður og rit-
höfundur J. Arthur Hill hefur skrifað nokkrar mjög
merkar bækur um sálarrannsóknamálið. Eina þeirra
nefnir hann SPIRITUALISM. Þá bók ritaði hann árið
1918 og gefur þar mjög greinargott yfirlit yfir málið,
sögu þess, fyrirbrigðin og heimspeki spíritismans. Margt
nýtt hefur vitanlega komið fram, siðan þessi bók var
skrifuð, en vegna yfirgripsmikillar þekkingar höfund-
arins og ritsnilldar stendur hún í fullu gildi enn, svo
langt ,sem hún nær. MORGUNN flytur hér niðurlags-
kafla þessarar bókar í þýðingu ritstj.
Á nítjándu öldinni var trúin á framhaldslíf orðin að
dauðum bókstaf flestum vísindalega menntuðum mönnum.
Vitanlega voru undantekningar frá þessu, eins og þeir
miklu menn Faraday og Kelvin, sem a. m. k. gerðu ráð
fyrir framhaldslífi sem möguleika. En sérstaklega var
það eftir að hinar líffræðilegu uppgötvanir voru gerðar,
sem einkuip eru bundnar við nafn Darwins og félaga hans,
að trúin a p'rsónulegan ódauðleika kulnaði út, jafnvel
meðal hugsandi leikmanna og presta, eftir því, sem dr.
Griffith-Jopes staðhæfir. Ódauðleikatrúin „þokaðist aftur
i baksvið vituudarlífsins", jafnvel hjá trúuðu fólki. Menn
fundu engar nútímasannanir fyrir henni, og jafnvel þar
sem hún var til hjá fólki, lifði hún fremur sem von, bor-
in uppi af „hinum máttvana höndum trúarinnar“, en
sem vissa.
Spíritisminn hrinti af stað vakningu í þessum efnum.
Hann staðhæfði, að eiga yfir að ráða sams konar sönn-
nnum og þeim, sem kristindómurinn var reistur á. Kristur
ieiddi ódauðleikann í Ijós með þeim hætti, að hann birtist
3.