Morgunn - 01.06.1946, Blaðsíða 52
42
MORGUNN
ótrúlegu framfarir orðið, sem vér þekkjum öll. En vér
þurfum meira en hlutrænan sigur yfir öflum náttúrunnar.
Slíkt vald er gott, en það þarf að nota það réttilega, og
einbeiting að því einu leiðir til þess, að menn verða andlega
blindir og misnota það vald, sem þeir vinna. Hin djöful-
lega persóna bókmenntanna, Mefistófeles, hafði geysileg-
um vitsmunum yfir að ráða, en hann átti ekkert siðgæði,
var andlega snauður.
Það virðist svo sem vér þurfum að sækja verðmæti bæði
til austurs og vesturs. Vísindum Vesturlanda verðum vér
að halda, en vér verðum einnig að læra að horfa út yfir
hinn jarðneska skynheim. Oss verður að skiljast, að al-
heimurinn er andlegt fyrirbrigði og að efnisheimurinn er
aðeins hluti af honum. Hin nýju vísindi sem nefnast sálar-
rannsóknir, sýnast bezt til þess fallnar, að vekja þá menn
til meðvitundar um hið ójarðneska, sem ekki eiga sjálfir
neina trúarreynslu og hafa ekki komizt í neina snertingu
við veruleika hins ósýnilega. Sálarrannsóknimar nota
rannsóknaraðferðir, sem nútímamaðurinn treystir, og þær
leiða manninn út fyrir hið jarðneska og inn í víðari skyn-
heim. Og jafnvel þeim, sem áður hafa átt sína innri
reynslu sjálfir, færa þessi nýju vísindi hjálp, sem annars
er ekki að fá, eða a. m. k. staðfestingu, sem ekki verður
metin um of. Þannig fór Myers. Þegar honum varð ljóst,
að sannanimar fyrir höfuðatriðum þess, sem hann hafði
trúað á, voru ófullnægjandi, kastaði hann þeirri trú fyrir
borð, þótt honum sviði skaðinn. En eftir þrjátíu ára sálar-
rannsóknastarf fann hann loks trygga staðfesting þess,
sem hann hafði áður trúað á, öruggari grundvöll en hann
hafði áður þekkt, og þá gat hann sagt: „Ég viðurkenni, að
þessar nýju sannanir, sem nú hafa gert hinar fornu frá-
sagnir um upprisuna trúanlegar, hafa gefið mér innsýn
og auðmjúkan þakklætishug, sem jafnvel hið einlæga trúar-
líf mitt í bernsku gat ekki gefið mér“.
Sannanir hafa fengizt fyrir framhaldslífinu og samband-
inu milli heimanna. Mótbárum efnishyggjunnar og trúar-