Morgunn - 01.06.1948, Side 79
MORGUNN 69
Þekking á sjálf. Og með venjulegum hætti verður sú stað-
reynd ekki skýrð, að hún sá og skrifaði með hinni mestu
oákvæmni í myrkri. Eða þá það, að hún gat lesið innihald
lokaðra bréfa í myrkrinu. Eða hitt, að kona, sem ekkert
0rð kann í þýzku, skrifar með miklum hraða og nákvæmni
langar orðsendingar á hreinni þýzku. En öll þessi fyrir-
brigði gerðust hjá þessum miðli og urðu eins vel vottfest
°g flest það, sem gerist í daglegu lífi voru“.
Raunar eru til svo margar skýringatilgátur um þessi
fyrirbrigði, að ekki geta þau út af fyrir sig sannað, að
hér séu andar framliðinna að verki, en í hinni stórmerku
k°k, Shadow Land, sem Madame d’Esperance reit um ævi-
starf sitt, er um fjölda af spíritistískum fyrirbrigðum að
raeða, sem á engan annan hátt verða skýrð en svo, að
framliðnir menn hafi verið þar að verki og sannað til-
Veru sína og návist. Þar segir hún frá því, hvernig hún
lék sér í bemsku við börn, sem aðrir sáu ekki. Við óvenju-
^ega skyggnigáfu hennanr bættist síðar fágætur hæfileiki
til líkamningafyrirbrigða, en af þeim voru teknar margar
J^yndir, t. d. verunni Yolande, sem innti sama hlutverk af
°endi hjá henni og Katie King hjá Florence Cook. Hvað
eftir annað líkamaðist hún, þótt Madame d’Esperance sæti
fyrir utan byrgið meðal fundarmanna. Þessi ævilangi föru-
nautur hennar frá öðrum heimi var frábærlega falleg vera,
§®dd miklum yndisþokka.
t þessari ágætu bók segir hún oss nánara en aðrir miðl-
ar hafa gert frá líðan sinni í miðilsástandinu. Henni fannst
eins og örfínt net væri ofið um höfuð sitt og hendur. Ef
Josglæta féll til hennar inn í byyrgið, sá hún eins og þoku
^Vlfa þar um og líkamsmyndir koma fram úr þokunni.
enni fannst hún vera að tæmast sjálf og missti þá alla
st3órn á limum sínum.
Líkamningafyrirbærin hjá Madame d’Esperance voru
stórfelid en jafnframt gerðust á sjálfri henni hin furðu-
egUstu aflíkamningafyrirbrigði. A. Aksakof segir frá því
1 hók sinni, A Case of Partial Damaterialization, hvernig