Morgunn - 01.06.1948, Síða 142
Hvað kennir spíritisminn um annað líf?
Því er oft varpað fram, að þrátt fyrir alla miðilsfund-
ina og aðra leit eftir hinum sálrænu leiðum, viti menn
svo að segja ekkert um lífið eftir dauðann. Spíritisminn
hafi þannig brugðizt öðru aðalverkefni sínu, eða a.m.k.
gert því sáralítil skil.
Raunar vita allir, sem við tilraunir og rannsóknir á þess-
um efnum fást, að miklum mun auðveldara er að fá að-
gengilegar sannanir fyrir því, að látinn lifi, en að fá greini-
lega vitneskju um, hvernig þessu „öðru lífi“ er farið í ein-
stökum atriðum. Höfuðviðfangsefni spíritismans er, að
safna saman sem mestum og sterkustum sönnunum fyrir
framhaldslífi mannssálarinnar og útbreiða þekkinguna á
þeim staðreyndum. Að því hefir starfið að langmestu
leyti beinzt. En þó er mikil fjarstæða að segja, að spírit-
isminn hafi enga þekking veitt oss á þeim skilyrðum, sem
látnir menn lifa við. Um það efni hefir þegar komið út
fjöldi bóka. Sumar þeirra eru ritaðar ósjálfrátt af rit-
miðlunum, en aðrar birta fregnir, sem komið hafa af vör-
um transmiðla og annarra sjáenda um þessi efni. Enn aðr-
ar eru ritaðar af mönnum, sem lagt hafa stund á að kynna
sér hið helzta, sem fram hefir komið um lífið eftir dauð-
ann hjá ýmsum miðlum, hafa síðan borið það saman og
skráð bækur um.
Hvað kennir spíritisminn um lífið eftir dauðann?
Til þess að svara þeirri spurning, þarf maður að hafa
lesið mikinn f jölda bóka, því að með ýtrustu varfæmi þarf
að fara að þessu máli, svo að sannleikanum verði ekki
misboðið, Að því er til þessara hluta kemur, eru miðlarnir