Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 156
146
MORGUNN
mörg tilverusvið, marga himna, læra nýja og nýja lær-
dóma, safna nýrri og nýrri reynslu. Spíritisminn hefir miklu
hærri hugmyndir um fjölbreytni alheimsins og dýrð en
guðfræðin hefir haft, og því er honum ljóst, að það er
barnaskapur að tala um, að sálin nái til hins endanlega
heimkynnis, þótt hún hverfi úr jarðarlíkamanum.
Þessar hugmyndir spíritismans hafa náð geysimikilli út-
breiðslu, þær eru að gegnsýra afstöðu manna til eilífðar-
málanna, einnig þeirra manna, sem aldrei hafa nálægt nein-
um spíritisma komið. Menn trúa ekki á sálmasönginn og
pálmaskrúðgöngurnar í eilífum aldingörðum, sem kirkjan
kenndi, menn trúa á starfið í himninum eins og á jörðunni.
Menn trúa ekki á kyrstöðu eftir dauðann í eilífu helvíti
eða eilífu himnaríki, menn trúa á áframhaldandi þróun. Og
margir menn, sem alvarlega hugsa um málin, eru þakklát-
ir spíritismanum fyrir þau aldcihvörf, sem hann er að valda
í þessum efnum.
Manly Pcilmer Hall er af sumum talinn gáfaðastur og
mikilhæfastur amerískra heimspekinga nú á timum. 1 des-
emberhefti tímaritsins Horizon, árið 1942, ritar hann á
þessa leið:
„Sumir hliðar hinna sálrænu fyrirbrigða hafa stund-
um sætt nokkurri gagnrýni frá mér. Ekki vegna þess, að
ég sé vantrúaður á spíritismann, heldur vegna þess að mér
hefir sýnst, að sumar hliðar hinnar sálrænu starfsemi
kynnu að koma þeim, sem ekki kunna fótum sínum for-
ráð, í nokkum vanda.
Spíritisminn hefir unnið mjög mikið jákvætt starf í þá
áttina, að koma á umbótum á afstöðu mannanna tilJífsins
eftir dauðann. Róttækar leiðréttingar hafa verið gerðar
á gömlum hindurvitnum um ástand sálarinnar eftir dauð-
ann. Með því að leggja áherzlu á, að lífið eftir dauðann sé
eðlilegt áframhald hins jarðneska lífs inn í hinn ósýnilega
alheim, hefir spíritisminn auðgað mannlega hugsun. Sá
skerfur spíritismans er mlkill og hann er skynseminni
samkvæmur”,
Jón Auðuns.