Barnablaðið - 01.10.1949, Side 4

Barnablaðið - 01.10.1949, Side 4
2 BARNABLAÐIÐ mamma kölluð burt frá okkur og kom aldrei aftur. Söknuðurinn og tómleikinn var mjög mikili. Árin geta aldrei eytt tómleikanum og sorginni eftir mömmu. Elskum okkar kæru móðir meðan hún er hjá okkur. Berum virðingu og traust til hennar, því að hún er Guðs stóra gjöf til okkar! Sá dagur kemur að hún verður kölluð burt frá okkur, og þá geta ekki tár okkar og bænir kallað hana til okkar aftur. Mamma, kæra mamma, hver er eins góð og þú? Enginn á þessari jörðu! S. J. Lítilsvirti krypplingurinn! í Alpadölunum í Norður-Ítalíu búa Valdenserarnir. Uinkringdir eru þeir af katolikkum, en þrátt fyr- ir það halda þeir samt fast við evan- geliska trú. Nú hafa þeir lögboðið frjálsræði, en þannig hefir það ekki ávallt verið. Þeir hafa þolað miklar ofsóknir vegna Krists og Biblíunn- ar. Ferðafólk, sem nú gistir í þorp- um þessa fólks í Alpadölum, heyrir næturvörðinn hrópa: Klukkan er 12. Friður Guðs hvíli yfir okkur. Blessuð sé minning Péturs Banner- mans. Þetta hefir verið hrópað kynslóð eftir kynslóð. Ferðamenn spyrja undrandi hver þessi Pétur Bannerman hafi verið. Það getur hvert barnið sagt, því að það er það fyrsta, sem mæðurnar segja þeim, og þá sögu fá þau að heyra aftur og aftur. Á tímum ofsóknanna voru Valdensarnir á stöðugum flótta. Frá einum dal til annars, fluttu þeir norður eftir, og komu að jokum í Chamoisedalinn. Fengju þeir ekki að vera í friði þar, yrðu þeir að flýja yfir Alpana eða deyja. Allt var und- irbúið fyrir þessa hættulegu ferð, ef að óvinirnir kæmu. Og þeir komu. Dag nokkurn kom fjöldi her- manna, sem nú hugðust hafa her- fangið í höndum sínum. Fólkið hélt kyrru fyrir, og myrk- ur og kyrrð lagðist yfir dalinn að vanda. Það eina, sem heyrðist var glamur hermannanna, sem höfðu setzt að í skólahúsinu. En þegar dimmt var orðið drógu Valdensarn- ir af stað, og söfnuðust í hellir upp í fjallinu. Þar féllu þeir á kné og gamli presturinn hrópaði til Guðs um varðveizlu á liinni hættulegu ferð. Svo lögðu þeir af stað. Prest- urinn gekk fyrstur, svo konur og börn, og síðast mennirnir. Þegar stanzað var á göngunni, þurfti að

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.