Barnablaðið - 01.10.1949, Page 5

Barnablaðið - 01.10.1949, Page 5
BARNABLAÐIÐ 3 grafa í snjónum, fleira en eitt smá- barn, og gamlir og lasburða urðu eftir sums staðar, en hjá þeim var eftir vopnfær maður, sem átti að hjálpa þeim, er þeir gætu haldið áfram. Þegar sólin næsta morgun kastaði geislum sínum á fjallatind- ana, sáu hermennirnir langa, svarta línu svo hátt uppi, að ekki leit út fyrir að geitur gætu fundið fótfestu þar. Meðal flóttafólksins var kona að nafni Meta Bannerman. Hún var ekkja. Maður hennar hafði dáið í ofsóknunum og falið hana og börn þeirra tvö umsjá trúsyskina. Annað barnið var sex ára drengur, sem var krypplingur, en hitt var ungbarn. Konan vafði teppi um iitla barn- ið og reyndi að halda því fast að brjósti sér. Veðrið var kalt, og í fleiri tíma hafði fólkið vaðið snjó- inn. í hvert skipti þegar stanzað var, sá Meta hvernig stíffrosin smá- börn voru tekin úr örmum mæðr- anna og grafin niður í snjóinn, og þá þrýsti hún barni sínu fastara að sér. En byrðin varð þyngri og þyngri. Hún gat næstum ekki látið vera að hrópa hátt þegar hún sá ástæðuna fyrir því. Hún gat ekki látið aðra vita að barnið væri dáið. Ekki hugsað til þess, að það yrði skilið eftir í snjónum. Nei, hún vildi bera það yfir fjallið, þangað sem þau fyndu verustað. Þar vildi hún jarða það við kirkjuhliðina og hlúa að leiðinu hvern dag. En sonur hennar, Pétur, sá sorg- ina á andliti hennar, og hélt að hún væri þreytt. „Mamma," sagði hann. „Get ég ekki borið Dóru litlu, svo, að þú getir hvílt þig?“ Loksins voru allir komnir upp á fjallið, og þá var farið að klifra niður á við. Bak við stóran klett var dálítið skjól fyrir vindinum. Þar var stanzað til að hvíla og þakka Guði. Meta gat nú ekki l^rgur falið að barnið væri dáið, og ásamt nokkrum öðrum, var það lagt til hvíldar í sjónum. Nú hafði Meta aðeins litla, vanskapaða drenginn eftir, og lagði hún því alla stund á að annast hann. Þegar fólkið kom yfir landamæri Sviss, var því vel tekið, og fékk það bæði mat og heimili. En það var^ langt frá að vera óhult ennþá. Mennirnir, bæði ungir og gamlir, urðu að halda vörð í fjallaskörðun- um til að mæta óvinunum, ef þeir freistuðu að elta fólkið. Jafnvel smá drengir urðu að hjálpa til, sums staðar urðu þeir að klifra, þar sem fullorðnir komust ekki. Það var aðeins Pétur Bannerman, sem ekki gat verið til gagns. Mamma hans reyndi að hughreysta hann og uppörfa til að biðja fyrir þeim sem væru á fjallinu, það væri líka veigamikil þátttaka. Og Pétur bað, en hann langaði til að gera eitt- hvað meira. Þannig leið tíminn og jólin nálguðust. Meta hafði eignast nokkra smápeninga, þar sem hún hafði ekkert til að gefa drengnum sínum, gaf hún honum aurana og

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.