Barnablaðið - 01.04.1950, Side 6
4
BARNABLAÐIÐ
eins Jesús! Það hefur þú oft heyrt í
sunnudagaskólanum og lesið um í
Barnablaðinu. — Þegar syndin er
fyrirgefin og fjarlægð, verðum við
virkilega glöð. Það er bezta meðal-
ið við sorg hjartans. „Sá, sem er
glaður, er sífellt í veizlu." ('Orðskv.
15 : 15). „Og glatt hjarta veitir
góða heilsubót." fOrðskv. 17 : 22).
Sunnudagaskólabörn áttu einu
sinni að útskýra af hverju hjartað
væri glatt.
„Það er hjartað, sem trúir á
Jesú,“ sagði lítill drengur. „Það er
syngjandi hjarta,“ sagði lítil stúlka.
„Það er hamingjusamt hjarta,“
sagði annað. „Hjarta, sem hatar
syndina,“ sagði það þriðja. — En
svo kom öll romsan: Hreinsað
hjarta, biðjandi hjarta, starfandi
hjarta, hjarta, sem elskar Biblíuna.
Það verða þá sjö mismunandi
hjörtu. — En þegar Salómon kon-
ungur segir: „Speki mannsins hýrg-
ar andlit hans,“ ('Préd. 8 : 1), þá
langar mig til að mótmæla, því að
spekingar heimsins eru sjaldan
glaðir, en oft mjög alvarlegir, —
næstum eins og myndin er öfug. —
En eigi Salómon hér við hina himn-
esku speki, þá er ég honum full-
komlega sammála.
Um speki þessa heims segir Saló-
mon: „Því að mikilli speki er sam-
fara mikil gremja, og sá, sem eykur
þekkingu sína, eykur kvöl sína.“
(Préd. 1 : 18).
„Þegar ég sá auglit þitt, var sem
ég sæi Guðs auglit," sagði Jakob við
Esaú, bróður sinn. (I. Móseb.
33 : 10). Það hlýtur að hafa verið
yndislegt. Hatrið var horfið.
Skáld eitt sagði: „Milt andlit get-
ur unnið meiri sigur, en heil her-
sveit.“
Þegar Móse kom ofan af fjallinu
Sínaí, eftir að hafa verið með Guði
í fjörutíu daga, „stóðu geislar af
andlitshörundi hans.“ éll. Móseb.
34 : 29).
Ásjóna píslarvottsins Stefáns var
„sem engils ásjóna.“ (Postulasagan
6 : 15).
Að endingu óskum við þess börn,
að þið verðið öll hamingjusöm,
brosandi drengir og stúlkur, sem
breiðið sólskin á veg annarra.
Paul frœndi.
HÚN MAMMA
Ef stelzt ég út til að fd mér fri,
hún mamma grœtur.
Ef les ég bókunum ekki i
hún mamma grætur.
Ef leiðist ég út á lasta stig
og Ijósin dvina i kringum mig
hún mamma grætur.
Ef ég er hlýðinn og gjöri gott —
þá gleðst hún mamma,
og sýni Guðsbarnsins glöggan vott
þá gleðst hún mamma.
Ef lausnarinn fær að leiða mig
og Ijósin skreyta 7ninn æfistig
þá gleðst hún mamma.
G. G. frá Melgerði.