Barnablaðið - 01.04.1950, Side 7
BARNABLAÐIÐ
5
Páskaliljurnar!
Þessi gleður mömmu með pdskaliljum.
Elsa var að planta nokkrum lauk-
um í blómsturpott. „Ótrúlegt, að
það skuli vera geymt líf í þessum
þurru laukum," sagði hún. „Hugsa
sér, að bráðum vaxa fallegar páska-
liljur upp af þeim. Mamma! Nú
veit ég, hvað ég geri, ég fer til
Ernst litla Berg með þennan pott,
hann liggur alvarlega veikur, og er
svo hræddur við að deyja.“ — „Það
getur þú.gert, Elsa, en ég skil ekki,
hvernig nokkrir blómlaukar geta
bægt burtu ótta við dauðann.“ —
„Jú, mamma, mér datt nokkuð í
hug núna, ég trúi, að það se jesús
sjálfur, sem lét mér það í hug
koma.“
Elsa sagði ekki meira, hún tók
pottinn og laukana og fór til sjúka
drengsins. í dyrunum mættí hún
móður Ernst, hún var föl ásýndum,
mjög þreytuleg og áhyggjufull að
sjá. Augu hennar voru rauð af gráti
og næturvökum.