Barnablaðið - 01.04.1950, Page 9

Barnablaðið - 01.04.1950, Page 9
BARNABLAÐIÐ 7 Hún kom og sá að lítil spíra var komin upp úr moldinni. Hún bað innilega til (.uðs, urn að drengur- inn mætti fá að lifa og fá að sjá liljurnar vaxa upp. Guð lieyrði bæn hennar. Litlu síðar uxu upp finun fallegar liljur, og gleði Ernst var mjög mikil. „Mamma, nú er ég ekki lengur hræddur við að deyja,“ sagði hann. „Nú er ég tilbúinn að fara lieim til Jesú, en þú mátt ekki gráta, mamma mín, því það er miklu betra að vera heima hjá Jesú, en liggja hér sjúkur.“ Síðan talaði hann um himininn og Jesúm, og hve gott það myndi verða að koma þangað heim. Litlu áður en hann kvaddi þenn- an heim, horfði hann á móður sína kærleiksríkum, geislandi augum, sem túlkuðu hans innra ástand. Svo fékk hann að flytja burt frá þjáningum, til heimkynna Frelsar- ans. Þegar frú Berg síðar hitti Elsu, sagði hún: „Kæra Elsa! Ég get aldrei full- þakkað þér fyrir það, sem þú gerð- ir fyrir drenginn minn. Óttinn við dauðann hvarf frá honum, og liann var svo glaður yfir að fá að fara heim til Jesú. Hann var ekki leng- ur hræddur við hina dimmu gröf, eftir að hann fékk að sjá, hversu fagrar páskaliljur uxu upp af hinni dimmu jörð. — Guð blessi þigl“ Hver var verðugur? Sál konungur var dáinn. Einnig Jónatan, liinn góði vinur Davíðs, sem átti að verða konungur eftir föður sinn, hafði fallið í stríðinu. Hver skyldi nú verða konungur? Hver var þess verður, að verða leið- togi og stjórnandi fólksins? Hverj- um treysti fólkið og herinn? Hver var fyrirmynd allra, þegar á víg- völlinn var komið. Hvern vildi fólkið hafa? Hvern vildu leiðtogar fólksins hafa fyrir æðsta sjórnanda sinn? Hvern vildi Guð sjá sem stjórnanda fólks síns á hinum hættusömu tírnum, þegar her ísra- els, með Sál í broddi fylkingar, hafði beðið ósigur fyrir óvinurn sínum? Það var aðeins einn, sem kom til álita. Hann, sem annaðist starf sitt sem fjárhirðir af kostgæfni og dugnaði. Hann, sem hafði hug til að ganga einn út í stríðið, þegar allir voru hræddir, það var hann, sem gekk af stað í nafni Drottins hersveitanna. Nafn hans yar Davíð, og hann varð konungur. Hann sér um alla í senn. En þótt hann elski fuglana, Hann meira elskar menn. Kór: :,: Hann elskar mig :,: Hann elskar líka mig. Sá Guð sem elskar lítinn fugl. Hann líka elskar mig. %

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.