Barnablaðið - 01.04.1950, Síða 17

Barnablaðið - 01.04.1950, Síða 17
BARNABLAÐIÐ 15 skíldi ég að það var nokkuð, sem þau ekki þekktu til. A£ Guðs miklu náð mætti Hann mér sem barni og frelsaði mig og það heldur enn í dag. En þið, kæru, litlu vinir, sem haf- ið langtum betra en ég hafði sem barn, þar sem þið fáið að heyra Guðs orð, bæði í sunnudagaskólan um og mörgum öðrum stöðum; hafið þið gefið Jesú lijartað ykkar og tekið á móti Honum sem Frels- ara ykkar og vini? HVERNIG ÞÚ VINNUR SIGUR. Það er reynsla mín, að það ung- menni, sem ekki byrjar að stríða gegn syndinni fyrr en á augnabliki freistingarinnar, bíður ætíð ósigur. En sá unglingur, sem stöðugt hefur opið hjarta fyrir Guðs góða varð- veitandi krafti, og útilokar sál sína frá vondum áhrifum, hann sigrar ætíð með aðstoð Guðs náðar, á freistingarstund. John R. Mott. BIÐJIÐ OG STARFIÐ. María litla var dugleg og áhuga- söm, bæði heima og í skólanum. Hún gat næstum alltaf svarað spurningum kennara síns réttilega, þvf námsgreinar sínar lærði hún vel. Dag nokkurn kom ein af skóla- systrum hennar, og spurði: — Hvernig stendur á því, að þú kannt ætíð námsgreinar þínar svona vel? BARNABLAÐIÐ kemur út fimm sinniom á ári, tvö- falt blað í hvert skipti, — alls 10 blöð árlega. — Verð 5.00 kr. ár- gangurinn, og greiðist 1. Júní. — í lausasölu kostar blaðið kr. 1.25 eintakið. Útgefandi: Fíladelfía, Akureyri. Afgreiðslan er hjá Jóhanni Pálssyni, Glerárgötu 3, Akureyri. Prentverk Odds Bjömssonar h.t. — Ég bið ávallt til Guðs um hjálj^ til þess að læra þær vel, svaraði María. — Þetta vil ég einnig reyna, sagði bekkjarsystir Maríu, hún sem sjald- an kunni nokkurt orð. Næsta morgun, þegar kennarinn spurði hana, gat hún eins og venju- lega engu svarað. í frímínútunum kom hún til Maríu, ávítaði hana fyrir að liafa gabbað sig svona, og sagði: — Ég hef beðið til Guðs, en kunni samt sem áður ekkert orð, sagði hún ergileg. María svaraði: — Hvað mörgum sinnum last þú bækur þínar? — Ég las þær aldrei, sagði lata stúlkan, því ég áleit að ég þyrfti ekkert að lesa, úr því ég hafði beðið, Þá sagði María: — Við eigum að biðja og lesa svo. Bæn og starf fer saman.

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.