Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1887, Side 5

Sameiningin - 01.03.1887, Side 5
MánaSarrit tit stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga, gejið' út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi. RITSTJÓRI JÓN BJARNASON. 2. árg. WINNIPEG, MAEZ 1887. Nr. 1. Di’ottinn segir í 2. Mós. 20, 5, um leiö og hann birtir Mósesi hin tíu Ijoöorð’: „Eg em vandlætissamr guð, sem hegni fyrir misgjörðir feðranna á börnunum í þriðja og fjórða lið, á þeim, sem mig hata“. það sýnist í fyrstu eitthvað und- arlegt þetta, að guðleg hegning fyrir syndir foreldranna komi niðr á börnum þeirra og barnabörnum og enn þá lengra fram í ættir. það sýnist naumast réttlát vandlætingarsemi af guði að láta börnin gjalda synda þeirra, sem foreldrar þeirra hafa drýgt. það sýnist ranglát vandlætingarsemi þetta. Og menn hafa líka einatt hneykslazt á þessu, með því að þeir hafa talið guði, al- góðum og alfulllcomnum, ósamboðið að segja slíkt, hvað þá í afskiftum sínum af högum syndugra manna að breyta eftir þessu sínu lagaboði. Eeyndar segir guð að eins í hinni á minnztu ritningargrein, að hegning fyrir misgjörðir feðranna lendi á þeim niðjum þeirra í þriðja og fjórða lið, sem hati hann, svo auðsætt ert að allir sleppa við slíkri hegning, sem elska drottin. En látum manninn vera, vondan, óguðlegan mann ; er ekki nóg að yfir hann komi hegning fyrir hans eigin syndir ? Getr rétt- lætið heimtað nokkuð meira ? Er það ekki himinhrópanda rang- læti að yfir nokkurn mann sé lögð annarleg syndagjöld ? Svona hugsa menn oft, og náttúrlegri slcynsemi, takmark- aðri og ófullkominni eins og hún er hér í jarðneskum mann- heimi, liggr ávallt við að hugsa þannig. Svo Imeykslast menn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.