Sameiningin - 01.03.1887, Page 12
—8—
mennast eru hafðir fyrir lexíur á hverjum sunnudegi fyrir sig
í sunnudagsskólum þessa lands og víðar. Kennendrnir í sunnu-
dagsskólum safnaða vorra geta eins fyrir því valið sér hverja
biblíukafla fyrir lexíur, sem þeim gott þykir.
Yér vonnumst eftir að geta einhvern tíma áðr en 2. ár-
gangr „Sam.“ er úti látið blað vort fœra lesendum þess ritgjörð-
ir frá ýmsum öðrum en sjálfum oss. þannig hefir séra Friðrik
J. Bergmann heitið oss því, að senda oss eitthvað í „Sam.“, svo
fijótt sem hann getr því við komið fyrir embættisönnum. Og
séra Helgi Hálfdanarson, hinn mikilsvirti forstöðumaðr presta-
skólans í Reykjavík, hefir góðfúslega boðið oss greinar í blaðið
um ákveðið mikilsvarðanda efni. Yér vitum fyrir víst, að les-
endr „Sam.“ hugsa gott til þess, sem í vændum kann að vera
frá báðum þessum mönnum.
Meðan blaðið er ekki stœrra en það er verða menn að gjöra
sig ánœgða með það, þótt það ekki fœri mönnum nema mjög
lítið af almennum kirkjulegum fréttum. Yér látum það, sem
oss þykir þjóð vora, í þeim sporum, sem hún stendr nú, mest
varða, sitja í fyrirrúmi fyrir öllu öðru, þá er kemr til efnisvals
í blaðið.
««<----•—.........—• -----»»
Píslarsaga frelsara vors byrjar svo : „þegar þeir höfðu lof-
sönginn sungið, fóru þeir til Olíufjallsins". í þeirri hlið Olíu-
fjallsins, sem sneri að Jerúsalem, lá Getsemane. þangað lagði
Jesús með lærisveinum sínum á stað. Yér vitum, hvað þar beið
hans. það var hið sára dauðans sálarstríð. Jesús vissi líka
sjálfr, hvað fyrir lá, þá er hann gekk út úr kvöldmáltíðarsaln-
um að lofsöngnnm eftir hið heilaga borðhald enduðum. Hugs-
aðu þér, maðr, að Getsemane sé fyrir framan þig, að þú sért á
leiðinni þangað. Getsemane og Golgata getið fallið saman fyr-
ir þér, en það getr líka verið að skilið. það er að segja: það
getr verið, þú þurfir að vaða elfi dauðans, eina eða fleiri, áðr
en hin síðasta kemr. En það getr líka hugsazt, að engin slík
torfœra sé á vegi þínum, þangað til þú stendr við takmarkið
síðasta. En allt kemr fyrir eitt. þér er nóg, að þú veizt, að
þú ert á leiðinni til Getsemane. Dauðastríðið hið síðasta er
eftir óháð. þess er í upphafi píslarsögu Jesú getið, að þeir hafi
farið til Olíufjallsins, og ekkert minnzt á Getsemane fyr en síð-
ar. Hinu megin við Olíufjallið lá Betanía, þar sem ástvinir