Sameiningin - 01.03.1887, Síða 13
9-
Jesú áttu heima, þau systkinin Marta og María og Lazarus.
Ef vér ekki vissum meira en það, sem stendr þarna í upphaf-
inu, þar sem segir, að þeir haíi farið til Olíufjallsins, gætum vér
ímyndað oss, að áfangastaðrinn myndi verða á þeim blettinum,
þar sem Jesús virðist hafa átt bezt og þægilegast á hinni jarð-
nesku æíi niðrlægingar sinnar. En ferðinni var í þetta skifti
ekki heitið þangað. Getsemane lá nær, og þangað lá leiðin.
Nú, drottinn vissi þetta fyrir. En hversu margr hefir vonglaðr
lagt á stað, með lofsöng gleðinnar í lijarta sínu, í þeirri von
að komast brátt á einhvern kæran og eftir þráðan blett, en
Getsemane var nær, og þar varð við að koma, og lengri varð
svo ekki leiðin. Flestir hafa eitthvert jarðneskt takmark fyr-
ir augunum eða í huganum, sem þeir eru að keppa að ná til,
í þeirri von, að þar talci eitthvað gott við. Einn er að hugsa
um að verða svo eða svo efnaðr, eða jafnvel auðugr. Einn er
að hugsa um að losna við skuldir sínar og verða svo öðrum
mönnum óháðr. Einn er að hugsa um að komast í hjónaband.
Einn er að hugsa um að skifta um bústað. Einn er að hugsa
um að ná svo eða svo mikilli menntan eða upplýsing. Einn
er að hugsa um að fá vini sína og vandamenn til sín eða kom-
ast til þeirra. Og svona nærri því í hið óendanlega. Margir
stefna eða sýnast stefna í hina eftir þreyðu átt. En Getsemane
er eflaust á veginuin fyrir sumum enn nær en hið ímyndaða
sælutakmark. þú kemst, ef til vill, aldrei þangað, sem þú ætl-
ar þér, óskar eftir að komast. Og úr því að það getr eins vel
verið, að svo fari, þá bústu við Getsemane. Bústu við hinu illa
og óþægilega; hið góða skaðar ekki. Og þótt Getsemane kunni
að vera lengra hurtu, þá er það víst, að fyr eða síðar liggr þó
leiðin þangað.
Hugsaðu þig þá kominn til Getsemane nú fáein augnablik.
þú tekr auðvitað, að svo miklu leyti sem þú átt þess kost, allt
það með þér inn í Getsemane, sem þér er hjartkærast, eða sem
þú helzt vonar að þá geti dugað þér. Lítum á Jesú. Hann
hafði oft áðr farið einn á afvikinn stað inn í Getsemane að
biðjast fyrir. En nú, af því dauðastríðið var fyrir höndum,
vildi hann ekki fara þangað inn einn. Og svo velr hann þrjá
ástkærustu lærisveina sína úr öllum hóp þeirra, og tekr þá með
sér inn í garðinn. þú vilt eflaust eins hafa hina hjartkærustu
ástvini þína hjá þér, þegar hin inikla stundin upp rennr. En