Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1887, Side 6

Sameiningin - 01.04.1887, Side 6
22— hlýtr að ganga, svo í andlegu tilliti, að hann hafi viljaþrek til að standast freistingarnar og geti svo út úr þeim gengið ekki einungis óskaddaðr í andlegu, siðferðislegu, tilliti, heldr og sem betri og fullkomnari maðr en áðr. „Ekki bið eg“,—segir Jesris í bœninni fyrir lærisveinum sínum, þeim, er þá voru, og þeim, er framvegis verða myndi, áðr en hann gekk út í píslir sínai-—, „að þú takir þá úr heiminum, heldr að þú verndir þá fyrir illu“. Og rétt á eftir segir hann : „Helga þú þá í þínum sannleika, þitt orð er sannleikr“ (Jóh. 17, 15. 17). Hann vissi, að hann hlaut að skilja við þá á freistingarstöðvunum, og hugsan lians var, að þeir skyldi verða öðrum til hjálpar, lífs og blessunar á sömu stöðvum. Og þá er að eins að biðja um, að þeir hafi í sér mátt til þess að geta sigri hrósandi gengið út úr þeim freistingum, er fyrir framan voru á veginum. Með hverju móti má þetta verða ? Með því að þeir sé helgaðir í hinum guð- lega sannleika, og guðs orð er sá sannleikr, segir Jesús. Svo hér erum vér þá komnir að því, sem getr tryggt ungt og ó- reynt fólk vort fyrir þeim andlegu hættum, sem það hlýtr að mœta hér í hinu ameríkanska mannlífi, eins og reyndar alla fyrir hverjum freistingum sein er, hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Guðs orð, komið inn í hjartað og orðið þar að ráð- anda lífsafli, það er hin eina óyggjandi trygging fyrir því að einstaklingar og heilir mannflokkar fái bjargazt í andlegu til- liti, fái gengiö þurrum fótum yfir haf spillingarinnar og ekki sokkið. Kristindómrinn ei vor eina framtíðarvon í þessu landi. (Framhald og niðrlag í næsta blaði). —-------*- •—.......——*-----»»> „Ef Kristr er ekki upp risinn, þá er vor kenning ónýt og trú yðar líka ónýt“, segir Páll postuli (1. Kor. 15, 14). Og það er ekki sérstaklega álit Páls postula þetta. Allir höfundar nýja testamentisins ganga út frá hinu sama. Hin fullkomna vissa um það að Jesús Kristr hefði risið upp frá dauðum, og þar með ómótmælanlega birt guðdóm sinn,—það er þessi vissa, sem fyllti brjóst postulanna, þá er þeir gengu út um heitninn, borg úr borg og land úr landi til Gyðinga og heiðingja með hinn endr- leysanda, friðanda og hugganda boðskap kristindómsins. það var hið mikla óskiljanlega andlega afl, sem trúin á guðdóm hins krossfesta Jesú frá Nazaret, alsönnuð með upprisu hans frá

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.