Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1889, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.01.1889, Blaðsíða 7
—175- s i n n Messías, var elcki eftir hjarta Gy'ðinga. Fólkiö „með- tók“ hann ekki. En aðrir Messíasar korrm fram, sem það (imeðtók”, og sexn allt öðruvísi en hann, er frá Nazaret kom, tókst aS fá lýðinn á sitt mál. Og söguna af ein- um slíkurn Messíasi ætla eg að leitast við að segja. Jerúsalem var fallin. Af musteri Jehóva var ekki steinn yfir steini standandi. En vonin um, að tímar endi’- lífgunarinnar myndi þó á endanum koma frá augliti dx-ott- ins, var ekki enn slokknuð út hjá Gyðinga-lýð. þeir fylgdu með harðla aðgætnum augum hinum pólitisku atburðum, er ];á gjörðust, og einkanlega öllum byltinguxn í Róxna- borg. Hver ein hreiiing, sein gekk í gegn um líkama hins risavaxna heimsríkis, gat vel verið forboði þess, að dómr guðs tœki nú til að dynja yfir hið hataða „Edom“; svo kölluðu Gyðingar oft Róm. þá er hermenn Títusar gjörðu áhlaupið á Jerúsalem, voru ýmsir Gyðingar, sem, meðan stóð á sjálfum musterisbrunanum, bjuggust við, að fá að sjá hjálpræðið koma af hiranum ofan. þessa hjálpræðis vænti lýðrinn enn, þá er hið voðalega dóms-óveðr œddi yfir höfði iians. þessi dómr hafði gjört musterið að engu og afnum- ið guðsþjónustu Jehóva En eitt var þó, sem hann ekki hafði neitt bifað, og það var Farísea-guðfrœðin. Ólærðuin lesendum sýnist þetta að líkindum undarlegt; þeim má virð- ast, að hafi þaö nokkuð verið, sem eyðilegging féll yfir, þá hafi það fyrst og fremst verið hún. En hugsanir guðs eru oftlega öðruvísi en manna hugsanir. Og saunleikrinn er það, að Farísea-guðfrœðin elcki að eins lifði musteris- brunann af, heldr líka lifir á þessum tíma og hefir enn stór-mikil álirii' meðal Gyðinga. Guðfrœðisháskólinn í Jerú- salem, sem á dögum Gamalíels hafði á sér svo frægt álit, var nú að vísu eigi lengr til í höfuðstað Gyðinga. En hann var þó til ekki langt burtu. I Jamnia við Gyðinga- lands-ströndina fáeinar mílur frá Jerúsalem hafði liann blórng- azt á ný, og það undir forustu manns, sem var sonarsonr Gamalíels sjálfs, og alveg í saina anda eins og áðr. A þennan skóla safnaðist nú saman œskulýðr Gyöinga úr öll- um löndum heimsins til þess að fá frœðslu í lögmálinu og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.