Sameiningin - 01.08.1890, Síða 7
—87—
Sérstaklega iagði séra Friðrík J. Bergmann'fram reikn-
ing frá forseta yfir kostnaö við Islands-ferð hans, sem sýndí,
að kirkjufélagið skuldaði lionum um 290 doll. — Eftir nokkrar
umrœður lvsti forseti ytír því, að liann ætlaðist ekki til að
félagið borgaði sér þessa skuld, tœki alls ekki við neinu
fé frá félaginu upp í hana. Og þakkaði fundrinn honuui
fyrir þetta.
Út af spurningunni endrnvjuðu frá Victoria-s "fnuði urn
hve langt mætti ganga starfsemi leikmanna í söfnuði var
samþykkt, að þingið fœli forseta á hendr aðj senda söfnuö-
inum svar.
Viðvíkjandi guðsþjónustuformsmálinu beiddist forseti þess,
að erindsrckar frá öllum söfnuðum skýrði sér skrifiega með
fám orðum frá, hvernig guðsþjónustuforminu því í fyrra
hefði tekið verið í söfnuði hvers einstaks fyrir sig, og
skyldi hann svo láta þingið vita, hverju svarað yrði. Og
var þetta samþykkt.
Forseti skýrði frá, að hann, eins og honum hefði ver-
ið faliö í fyrra, heföi hoðið þeim séra Valdemar Briem og
séra Mattíasi Jokkumssyni til næsta kirkjuþings (1891), að
beint svar hefði hann frá hvorugum þeirra fengiö, en að
hann hyggist við, að þeir myndi eigi geta þegið boðið. Og
var samþykkt, að ef þessir menn neituðu boðinu, þá skyldi
hætt við að bjóöa nokkrum til kirkjuþings heiman frá Is-
landi.
Séra Friðrik Bergmann bar fram )já tillögu, sem var
samþykkt, að út af því, að í ár væri 3ö0 ár lifin síðan
nýja testamentið kom fyrst út á íslenzku (nl. þýðing Odds
Goitskálkssonar), þá feli þingið 1‘orseta að tiltalca einhvcrn
vissan sunnudag á þessu áii, þá er þessa þýðingarmikla at-
burðar í kirkjusögu ísl. þjóðarinnar skyldi hátíðlega minnzt
við guðsþjónustur safnaðanna.
Nefndin 1 prestlevsismálinu lagði næst fram álit sitt
svo hljóðanda:
Herra forseti!
Nefndin, sem pór kvödduð til að íhuga prostleysismál safn-
aöanna, hefir komizt að svo látandi niðrstöða:
Það er bryn nauðsyn til að fá að minnsta kosti presta