Sameiningin - 01.01.1892, Blaðsíða 4
—180—
Ííf þeirra. Góðir foreldrar vilja allfc til vinna og sjálf
ganga alls á mis regna barnanna sinna. Svo vænt þykir
yður um börnin yðar. En þjer vitið og viðurkennið, að
til er annað, sein miklu sárara er en dauðinn. þjer vitið
að eitt er til svo óttalegt, að það stingur sál yðar með
hinum skelfilegasta sársauka. Og það er að börnin yðar
snúi sjer frá guði og öllu góðu og láti það illa algjörlega
fá vald yfir sínum innra manni. þegar sú hugsun flögrar
fjrir eins og einhver svartur fugl yzt úti í sjóndéildar-
hringnum, að barnið yðar í lífi sínu afneiti guði og sann-
leikanum og gefi sig aiveg í þjónustu þess sem illt er,
verðið þjer svo gagntekin af hrylling, að þjer byrgið fyrir
augu yðar með báðum höndum og hrópið til drottins: Al-
máttugi faðir! tak þú heldur barnið mitt til þín meðan
það er ungt og óspillt, en að nokkuð svo voðalegt verði
því að tjóni.
En sje nú þessi tilfinning vakandi hjá yður, ó, í guðs-
bænum vakið þá yfir börnunuin yðar og látið það vera
yðar mesta áhugaefni að ieiða þau til frelsarans og gróður-
setja trúna á hann í hjarta þeirra. Yerið ];eim fyrirmynd
í orðum og gjörðum. Látið þau verða vör við það í lífi
yðar, að utn kristindóminn sje yður annara en allt annað.
Kennið börnmn yðar um fram allt að biðja, því einungis
bænin leiðir manninn inn í samfjelagið við guð og ftels-
ara sinn. þá hjálpið þjer prestinum með að undirbúa börn-
in yðar undir ferminguna. Og þá þurfið þjer ekki að ótt-
ast, að fermingin nái ekki tilgangi sínum. Hún verður
þá það, sem hún á að vera: staðfesting hins unga og ó-
staðfasta hjarta í trúnni á frelsarann.
TRÚARVÖRN EÐA TRÚARSÓKN!')
J>ýtt af ritstjóra ,,Sam.*‘
Trjesmiður einn hafði í æsku verið fjelagsbróðir sveins
nokkurs, er var sonur auðugs og tigins manns. Eptir að
i) RitgjöríS pessi er kafii úr bók eptir Heuch, biskup í Noregi, sem
hann nefnir Kirken oVantroen. Hennar hefur verið íðm ipinnzt í „Sam.“