Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1892, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.12.1892, Blaðsíða 9
—153— legju tímaritum vorum eptir þeim fijngum, sem vjer höfum til þess. Mundurn vjer á þann hátt vinna hinni ísl. kirkju vorri hií5 mesta gagn. því vitf þessar utnræfSur mundi hugsun almennings vakna og íslenzk alþýða færi að hugsa meir um kristindóminn sinn en áður hefur átt sjer stað. Opinberar urnræður um krist- indóminn eru, eins og vjer munum áður hafa tekið fram, eitt af skilyrðunum fyrir nýju kirkjulegu lítí meðal þjóðar vorrar. Hin kirkjulegu tímarit vor ná ekki tilgangi sínura nema þær komizt á. það mundi styrkja trú margra og ríla kristindóminn. Að vísu má við því búast, að við þær umræður mundi koma fram heilmikið af vantrú jafnvel meðal ýmsra kirkjunnar manna. Sumir mundu, ef til viil, kalla þann árangur illan, en vjerfyllum ekki þeirra flokk. þar sem vantrúin á annað borð er til, þarf hún að koma fram til þess aö fá sinn dóm,—dóm guðs-orðs. Eitt- hvert hið mesta mein vort er það, að vantrúin hefur ierigið að grafa um sig í kyrrþey, án þess að unnt hafl veriðað bregða ljósi guðs-orðs yfir hana. Innblástur heil. ritningar er eitt af grundvallaratriðum kristindórnsins. það er umfangsinikiö og vandasamt, og til þess að tala um það, verður rnaöur um fram allt að kynna sjer biblí- una sjálfa, lesa guðs-orð. En sí, sem lærir rjettilega að lesa guðs-orð, lærir utn leið að beygja sig f'yrir því. Og það er aðal- 'itriðið. Síra M. og ýmsir, er tala líkt og hann, segjast trúa á guð, en ekki þann guð, sem biblían opinberar. Hvar hafa þeir fengiö sína opinberun? Ekk' í biblíunni, ekki heldur frá þeim guði, sem biblían talar um. Nei, þeir hafa hvergi fengið hana heuia hjá sjálfum sjer; þeir hafa sj flfir skapað sjer sinnguð með þessari dæmalausu „skynsemi“, sem þeir eru einlægt a'' tala um. En þeg.tr sagt er utn einhvern, að hann hafi sjálfur skapað sirtn guð, er það hið sarna og sagt væri, að maðurinn tryði á sjált’an sig. Vjer höfum allir rneiri og minni fyrirlitning fyrir skurð- goðurn heiðingjanna,—ntyndunum úr ttje eða málmi, setn þeir falla fram fyrir. En goð, sem búin eru til af mönnutn, er neita að trúa á guð biblíunnar, eru nákværnlega jafn-göfug og skurðgoð heiðingjanna, en ,,guðsdýrkun“ þeirra er miklutn mun ógöfugri ert guðsdýrkun heiðingjanna.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.