Sameiningin - 01.08.1897, Page 16
—80—
Upphæð sjóðsins samkv. reikningi 1. Júlí 1896.............13,151.89
Vextir af sjúðnum frá 1. Júlí ’96 til 1. Febrúav ’97 ........ 118.55
Áfallnir vextir frá 1. Febrúar til 1. Júlí ’97............ 64.01
Fyrir Aldámöt V. árg...................................... 35.00
Gjafir boi-gaðar í skólasjóð á árinu...................... 1.475.65
Samtals.................?4,845.10
Að auki á skólasjöðrinn í loforðum, sem gefin hafa verið fjármála-
erindsreka kii-kjufélagsins, $377, og telr nefndin sjálfsagt, að mestöll
muni þessi öinnkomnu loforð verða borguð á næstkomanda hausti.
Öll ný lán, sem veitt hafa verið á árinu, hafa verið gegn fyrsta
veði í fasteign.
Á þinginu í fyrra kom fram tilboð frá bœnnm Crystal í Norðr-
Dakota um, að gefa $2,000 í peningum og 6 ekrur af landi, svo framar-
lega sem ákveðið yrði, að byggja skólann þar. Nú liefir sami bœr gjört
tilboð um að gefa $3,000 í peningum og 10 ekrur af landi. Og bœrinn
Park Biver í North Dakota sendi erindsreka hingað á þetta kirkju-
þing, sem iagði fram tilboð frá þeim bœ um $4,000 gjöf í peningum og
10 ekrur af landi, svo framarlega sem skólinn yrði byggðr þar, ojj
voru öll þau loforð lögð fram í undirskrifuðum nótum, og' verðr nu
þingið að ákveða, hvernig það vill taka þessum boðum, sem gjörð eru
af góðuin vilja og vér höfum mikla ástœðu til að vera þakklátir fyrir.“
þingið greiddi séra Jónasi A. Sigurðssyni í einu hljóði
þakklætisatkvæði fyrir starf hans sem fjármálaumboðsmanns
í skólamálinu.
Síðan hófust langár umrœður utn málið, sem aðallega sner-
ust um það, livort skólastœðið skyldi nú fastákveðið eða ekki,
o<r í annan stað um það, hvar skólitin skyldi settr, þá er til
þess kœmi.
Tillaga var borin upp og samþykkt um það, að bréf þau
skólatnálinu viðvíkjandi, setn farið höfðu á milli forseta kirkju-
félagsins og skólatnanna nokkurra, væri lesin upp.
Forseti skýrði frá, að bréf þau, sem hér er við átt og hann
hefði lauslega getið um í ársskýrslu sinni, væri til skýringar
því spursmáli, hvort og að hve miklu leyti það væri annmörk-
um bundið að cinu leyti fyrir námsmenn frá Canada að halda
áfram námi við menntastofnanir í Bandaríkjunum, og að öðru
leyti fyrir nátnsmenn frá skólum Bandaríkja að halda námi
áfratn á skólum Canada-manna. Upp á hið fyrra atriði hefði
hann sent samhljóða fyrirspurn til 5 skólastjóra í Bandaríkj-
um: dr.s Wahlström, forstöðumanns fyrir Gustavus Adolphus
College í St. Peter, Minnesota, dr.s Weidner, forstöðumanns
hins lút. prestaskóla í Chicago; dr.s Roth, forstöðumannsins
fyrir Thiel College í Greenville, Pennsylvauia; dr.s Northrop,
forstöðumannsins fyrir háskóla Minnesota-ríkis í Minneapolis;