Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1899, Page 20

Sameiningin - 01.03.1899, Page 20
12 hans (heriilar), sem níí aö líkamanum til er lagör (lögð) í gröf- ina. Veit oss náð til þess réttilega að bera skyn á hinar mörgu yfirtroðslur vorar og réttláta reiði þína gegn syndinni, að vér af öllu hjarta fáum snúizt til þín og leitað þess, sern uppi er, þar sem Kristr er;—svo vér fáum daglega æ meir og meir dáið frá syndinni, lifað saman í bróðurlegri elsku, þjón- að þér í réttlæti og sönnum heilagleik, fyrir trúna á þitt orð orðið undirbúnir undir dauða vorn, og af miskunn þinni endað æfidaga vora í fagnaðarríkri von um sæla upprisu, fyrir Jesúm Krist, drottin vorn. Amen. Almáttugi guð, himneski faðir, vér þökkum þér fyrir það, að þú kallaðir þennan bróður vorn (þessa systur vora) til þekk- ingar á syni þínum og heilags samfélags við hann, að þú varð- veittir hann (hana) í þeirri þekking og þeim félagsskap, og að þú hefir nú tekið hann (hana) burt inn í þína himnesku hvíld. Og vér grátbœnum þig að hjálpa oss með heilögum anda þín- um til þess að þekkja syndir vorar rétt og hryggjast af þeim, og styrkjast svo í trú vorri á Krist, að vér í öllum hlutum fá- um vaxið upp til hans, sem er höfuð vort, ávallt vegsamað þig í endrnýung lífernisins og glaðir beðið sælu þeirrar, sem er í vændum, og dýrðlegrar opinberunar hins mikla guðs og frels- ara vors Jesú Krists, sem með þér og heilögum anda lifir og ríkir um aldir alda. Amen. Miskunnsami og náðugi guð, sem með dauða þíns einget- ins sonar hefir breytt hinum skelfilega dómi dauðans, er fall- inn var yfir alla menn, og látið hann verða að heilsusamleg- um aga fyrir hina trúuðu,—blessa oss dauða þessa ástvinar vors, svo að vér fáum hugsað um vorn eigin dauða eins og vera ber, með trúnni losað hjörtu vor við forgengileg gœði þessa heims, kostgæfilega búið oss undir stundina ókomnu, þá er vér hljótum að fara burt héðan, og að lokum falið oss í þínar hendr, í fagnaðarríkri von fyrirheitinnar upprisu,— fyrir Jesúm Krist, drottin vorn. Amen. Almáttugi guð, sem fyrir son þinn Jesúm Krist, hefir heit- ið oss þvf, að gjöra dauðann að engu, og fyrir hvíld hans í

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.