Sameiningin - 01.06.1899, Side 4
52
hana og hugsum um hana og lifum af henni, að oss finnst, eða
,,liggjum eins og á brjóstum hennar“. Vér eigum í baráttu
fyrir lífinu, heyjum það stríð, harðsótt margoft, og erum sí og
æ að hugsa um það. Umhyggjurnar og áhyggjurnar í sam-
bandi við það koma eins ogsnjóflóð ofan úr íslenzkum hamra-
beltum niður yfir oss. Oss finst eins og alt hvíli á oss og vér
þurfum að sjá um alt. Vér sökkvum oss æ dýpra niður í hið
jarðneska og stundlega. það dregur huga vorn æ nær sér og
tengir hann æ fastar við sig. Vér verðum æ meir samgrónir
lífinn hér á jörðunni. En meðan á þessu stendur, er ,,heim-
urinn“ að smá færast upp á herðarnar á oss, en himininn
smám saman að hverfaoss sjónum. Vér færumstæ nær jörð-
unni, þar til hún verður oss alt; en um leið æ fjær himninum,
þar til hann verður oss ekki neitt.
Auðvitað er himininn sá sami, opinn og bjartur, þrátt
fyrir það þótt vér breytumst, því guð er hinn sami, hann sem
býr í himninum. Vér að eins byrgjum fyrir hann, með því að
bera ,,heiminn“ á herðunum, í stað þess að hafa hann undir
fótunum og láta hann lyfta oss nær himninum.
Góðurinn minn, þú sem lest þetta, ef þú finnur einhvern
sannleika í því, lofaðu honum þá að minna þig á það, að þú
látir heiminn aldrei hylja fyrir þér himininn, en að þú hafir
hann undir fótum þér og lítir upp í himininn til föður þíns, í
Jesú nafni. Hann getur borið heiminn á höndum sér og þig
líka; enda gerir hann það áreiðanlega. Starfaðu svo að verk-
inu þínu, en gleymdu ekki að líta upp til hans og láta það
miða upp á við og lyfta sjálfum þér æ nær himninum.
Áirrjp af sögu „General Councils“.
Snemma á seytjándu öld hófst innflutningur lúterskra
manna til meginlands þess er vér nú byggjum, Ameríku. Ar-
ið 1613 stofnsettu Hollendingar nýlendu á Manhattan-eyju,
þar sem New York-borg nú stendur. Flestir þeirra tilheyrðu
reformeruðu kirkjunni; en þó voru fáeinir lúterskir menn
jafnvel í fyrsta hópnum. Ekki óx samt tala lúterskra Hol-
lendinga í Ameríku að miklum mun, og loks hverfur hið
kirkjulega starf þeirra algjörlega úr sögunni.