Sameiningin - 01.06.1899, Qupperneq 5
53
Lengra suður með austurströnd Ameríku, þar sem nú er
ríkiS Delaware, settist aS annar hópur lúterskra manna, Sví-
ar. þeir stofnuSu þar nýlendu áriS 1638. þeir áttu oft mjög
örSugt meS aS fá nægilega prestþjónustu á sínu máli og í sam-
ræmi viS sína trú. BörSust þó þeir og afkomendur þeirra
mjög ótrauSlega fyrir því, aS viShalda trú feSra sinna; en þó
kom aS því, er tímar liðu fram, aS þeir gleymdu sínu svenska
þjóSerni, gengu í biskupa-kirkjuna ensku, og hurfu þess vegna
úr sögu lútersku kirkjunnar.
ÁSur en þessi svensk-lúterska starfsemi var með öllu liS-
in undir lok, voru aSrir lúterskir straumar farnir aS renna inn
til þessa meginlands. Hin upprunalega, og um leiS stærsta,
lúterska þjóS heimsins var farin aS senda syni sína og dætur
hingaS yfir um. Ekki er hægt meS neinni vissu aS staShæfa
hvenær hinn fyrsti lúterski þjóSverji stéfæti á land í Ameríku;
en víst er þaS, aS ekki átti sér staS neinn verulegur innflutn-
ingur þeirra fyrr en áriS 1683; og ekki var nein veruleg kirkju-
leg starfsemi meSal þeirra fyrr en í byrjun átjándu aldarinnar.
Um þau aldamót var all-mikill innflutningur hingaS frá þýzka-
landi, og hefir hann haldist fram á þennan dag. Mikill fjöldi
þjóSverja er búsettur víSsvegar um öll Bandaríkin. Hafa þeir
á þessari öld sezt aS í stórum hópum í Ohio, Illinois, Wiscon-
sin, Iowa, Missouri, og víSar í miS- og vestur-hluta Banda-
ríkjanna og Canada. En allir hinir elztu þýzkir innflytjend-
ur tóku sér bólfestu í austurhluta Bandaríkjanna, einkum í
Pennsylvaníu. þar mynduðu þeir stórar nýlendur, og þann
dag í dag byggja afkomendur þeirra hinar sömu sveitir og eru
því sem næst eins þýzkir eins og forfeSur þeirra voru fyrir 150
árum síðan. Jafnvel í stórborginni Philadelphia, í Pennsyl-
vaníu, er einn hinn elzti þýzk-lúterski söfnuSur í landinu enn
algjörlega þýzkur,—þetta, jafnvel mitt í einni af hringiðum hins
enska heims. þrátt fyrir alt þetta er þó auðvitaS mikill hluti
afkomenda hinna upprunalegu þýzku landnema orSin nú ein-
göngu enskumælandi og algjörlega ameríkanskur.
Fyrsti lúterski söfnuðurinn meSal þjóðflokks þessa var
stofnaður um byrjun átjándu aldarinnar. Fyrsti prestur
þeirra var vígður, af svensku prestunum í Delaware, áriS 1703.