Sameiningin - 01.10.1899, Síða 6
sem lítil stúlka, og þar hafSi hún þekst sem hin auöuga greifa-
dóttir. Hún ætlaði aS sigla fram hjá Hamborg til Danmerk-
ur; en hvernig sem hún reyndi gat hún J?aS ekki, því alt af
var sterkur mótbyr. Hún gekk því á land á sínum æsku-
stöSvum, og var beöin að tala fyrir verkamönnunum í ein-
hverjum stærsta samkomusal bæjarins. Margir urSu samt til
aS vara hana viS því, aS tala þar. Henni var sagt, aS henni
mundi aldrei takast þaS, því svo mikiS mundi safnast þar sam-
an af anarkistum, guSleysingjum og æSisgengnum skríl, aS
henni mundi aldrei auSnast aS koma nokkru lagi á þann hóp.
En hún treysti guði sínum og hræddist ekkert. þegar hún
kom í salinn, var hann orðinn troSfullur af fólki og var mikill
órói hvervetna í salnurn. Svo fór hún aS tala. I fyrstu var
hlustaS á hana. En þegar hún fór að segja þeim frá Jesú
Kristi, fór þingheimur að hlæja. þeir þóttust ekki vera upp á
Krist komnir. Svo tók hún æftir því, aS hópur manna var
að brugga eitthvaS með sér, og litlu síðar kom' einn hinn
svaSalegasti úr hópnum með barefli í hendinni og óð upp að
henni, þar sem hún stóS á ræðupallinum, reiddi upp kylfuna
og miSaði henni á enniS á henni; en henni brá ekki, heldur
gekk hún beint framan aS manninum, lagði höndina á öxl
honum, kallaSi hann vin sinn og ávarpaði hann meS svo kröft-
ugum orðum, aS hann hætti viS fyrirætlan sína. Svo hélt
hún áfram ræðu sinni; en í hvert skifti, sem hún nefndi Krist,
fór skríllinn aS hlæja. Hún sá.aS svo búiS mátti ekki standa.
Hún bað því áheyrendurna að lofa sér að segja eina setningu,
og ef nokkur í salnum hlægi aS henni, skyldi hún hætta að
tala. Svo bað hún guS heitt og innilega aS leggja sér orð í munn
og koma orSi sínu til varnar. Setningin var aS eins mjög
einfaldur boðskapur um Jesúm Krist og hans frelsandi náS,
en svo mikill guSs andi og alvara fylgdi orðunum, að enginn
einn einasti maSur í salnum hló. Upp frá þeirri stundu hafði
hún áheyrendurna í hendi sér. Hún hélt margar fleiri sam-
komur í Hamborg, og hafSi stórmikil áhrif á verkamannalýð-
inn til góðs.
Fyrir eitthvað ári síðan kom hún til Ameríku. SkipiS
hennar kom líka, og fór hún á því upp St. Lawrence-fljótið