Sameiningin - 01.12.1899, Qupperneq 12
156
heföi þó getaö veriö miklu stærri. Aö landiö er gott í augum
annarra sést af því, aö aðrir þjóðflokkar eru nú að flykkjast
þangaö í stórum hópum, svo að nú er mér sagt, að varla sé
eitt einasta ótekið land í allri Víðinesbyggöinni. Og ef land-
lausir Islendingar víðsvegar ekki vakna til meðvitundar um,
hverju er fram að fara, lítr helzt út fyrir, að bráðum verði allt
ónumið land í Nýja ísland farið.
Kristindómrinn þarf að glœðast í Nýja íslandi eins og
víðar meðal vors fólks. Eg bið guð vonarinnar, að veita
mönnum kraft vonarinnar til að starfa að þeim málum í anda
Jesú Krists og hans blessaða náðarnafni.
Önimr missíónarferð.
Eftir séra Jón J. Clemens.
Hinn 26. Sept. lagði eg á stað í missíónarferð, og var eg
í burt að heiman tæpar þrjár vikur. í þessari ferð heimsótti eg
landa mína í þingvallanýlendu, Lögbergsnýl., Vatnsdalsnýl.,
Laufássbyggð og í Brandon. Eg flutti níu messur og skírði
þrjú börn.
Eg kom til Churchbridge, Assa., sem er 321 mflu frá
Baldr, með járnbraut að kvöldi 27. Sept. Fyrir norðan
Churchbridge 4—10 mílur liggja Lögbergs og þingvallanýlend-
urnar. í þeim byggðum búa 30 ísl. fjölskyldur (177 sálir).
Stunda landar þar nærri eingöngu kvikfjárrœkt, og láta þeir
vel af líðan sinni.
Söfnuðinum í þingvallanýlendu tilheyra 25 fjölskyldur
(158 sálir). í báðum byggðunum flutti eg fjórar messur, og
voru þær sóttar af öllum byggðarbúum. Til altaris tók eg 40
manns og skírði eitt barn. Séra Oddr V. Gíslason hafði tek-
ið fólk til altaris í vor; því voru ekki fleiritil altaris í þetta sinn.
Sunnudagsskóla hefir verið haldið uppi í byggðinni í sum-
ar. Hefir Björn skólakennari Sigvaldason staðið fyrir honum.
Skólinn hefir verið vel sóttr. Kennslan hefir farið fram á
íslenzku og ensku.
Safnaðarfundr var haldinn í félagshúsinu síðasta daginn,