Sameiningin - 01.12.1899, Side 15
»59
menning, kristniboö og þjóöinenning, kristindómr og breyti-
þróunarkenningin, aftrverkandi áhrif kristniboðsstarfsins í
heiðingjalöndunum, aftrhvarfs-nauðsynin, kristileg trúarvissa,
trúarlegr eldmóðr, kristilegt líferni, guðsdýrkan í anda og
sannleika, kristniboðsstarfsemi nútíðarinnar (meðal heiðingja
og Gyðinga). í samanburði við guðfrœðinga tóku merkilega
margir þátt í fundarhaldinu og umrœðunum, sem ekki höfðu
lagt stund á guðfrœði.
Félagsskapr sá, sem stendr á bak við þessa kristilegu
stúdenta-fundi, hefir mjög mikla og blessunarríka þýðing fyrir
kirkju og kristindóm. Almenningr fær hér meðal annars á-
þreifanlega sönnun fyrir því, að œðri menntan og lærdómr
þurfi ekki endilega að útrýma trúnni á hinn guðlega boðskap
heilagrar ritningar, heldr geti þetta tvennt mjög vel samein-
azt. Og almenningr sér enn meira en það. Líka það, að
kristindómrinn er einmitt nú óðum að verða ofan á í mennta-
lífi þjóðanna.
Væntanlega verða fleiri Islendingar á næsta almenna
stúdentafundinum, sem haldinn verðr á Norðrlöndum, því á
þessum fundi voru út af rœðu, sem séra Jón Helgason hélt
þar, hafin fjársamskot nokkur, á 6. hundrað krónur, upp í
ferðakostnað fátœkra íslenzkra stúdenta, sem framvegis vildi
sœkja þessi fundahöld.
-------^OOO-í---------
í Nóvember-blaðinu af ,,Verði ljós!“ er sálmr eftir séra
Mattías Jokkumsson með fyrirsögninni: Œffsta boðorSiSí lög-
málinu. En í aðalefninu er þessi sálmr áðr kominn í sálma-
bókinni — nr. 18—, að eins þar styttri og áhrifameiri. Fyrsta
og síðasta vers sálmsins eins og hann birtist í blaðinu vantar í
sálmabókinni. En aftr vantar í blaðinu annað vers hans eins
og hann stendr í sálmabókinni. Og það vers er vafalaust ein-
hver ágætasti partr sálmsins, — þetta vers :
,,Og aldrei skilr önd mín betr,
að ertu guð cg faðir minn,
en þegar eftir villuvetr
mig vermir aftr faðmr þinn