Sameiningin - 01.02.1900, Side 5
181
hvers vegna vér fremr ættum aö þakka honum en hann oss.
það var eitt sinn, að menn bjuggu sig til að greiða honum
Lincoln okkar þakklætis-atkvæði fyrir það, að hann gegndi
forsetastarfi á fundi einum f Illinois; en ]?á lét hann þá hætta
við það. Hann kvaðst hafa reynt að gjöra skyldu sína og
þeir hefði reynt að gjöra þeirra skyldu. Og hélt hann, að það
gæti vegið hvað á móti öðru. ‘ ‘
Moody kom á fót fjórum kristilegum menntastofnunum :
tveim akademíum fyrir drengi og einum kvennaskóla í North-
field, og biblíufrœðaskóla í Chicago. Dr. Weidner, forstöðu-
maðr prestaskólans lúterska í Chicago, kenndi um tíma á
þessum síðastnefnda skóla Moody’s. Til að halda stofnunum
þessumí gangi hafa að undanförnu þurft 125 þúsundir dollara.
Og hefir Moody sjálfr lagt mest-allt það fé til. Hefir
honum innhenzt það á prédikunarferðum sínum. En nú er
við fráfall hans ákveðið, að hafa upp með samskotum þrjár
milíónir dollara, mynda þar af sjóð og láta renturnar bera
kostnaðinn, sem áframhald kennslustofnana hans hefir í för
með sér.
Að því leyti, sem Moody heyrði nokkurri sérstakri kirkju-
deild til, þá var það Kóngregazíónalista-kirkjan. En annars
tók hann nálega ekkert tillit til kenningar-afbrigða þeirra, er
aðgreina hina ýmsu evangelisku kirkjuflokka. Og lá að sumu
leyti styrkr hans í því, en að sumu leyti líka veikleiki hans.
Veikleiki stefnunnar hefir þó miklu fremr komið fram hjá
uppvakningarprédikurunum ýmsu, sem hafa verið að reyna
til að stæla hann, en honum sjálfum. þeim hefir svo oft
hætt við að koma kristnu fólki til að ganga fram hjá sinni
eigin safnaðarkirkju og vera í andlegu tilliti allsstaðar og
hvergi. En Moody gjörði sér yfir höfuð að tala far um að
draga menn inn í kirkjuna, festa þá í safnaðarkirkjunum
þeirra og koma þeim til þess að láta þar ljós sitt skína. Hann
trúði hiklaust á biblíuna sem guðinnblásið sáluhjálparorð.
Og aðalatriði kenningar hans var æfinlega kærleikr guðs og
hin frelsandi náð hans í Jesú Kristi. Hann var heitr tilfinn-
ingamaðr og lagði líka mikla áherzlu á það f prédikunum sín-