Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1900, Side 2

Sameiningin - 01.06.1900, Side 2
50 5. Sem barn eg óx í brosi kærleiks þíns, en brátt eg reis í þverúð hjarta míns og hóíst J?ér gegn, en þú ei breyttir þér. O, þú, minn Jesús, bú þú æ hjá mér ! 6. Eg þarfnast mjög þú sért í náð mér nær. Hver nema þú við falli hlíft mér fær ? Hver nema þú mér líf og leiðsól er ? I logni’ og stormi, Jesús, bú hjá mér! 7. Með þig við hlið mig ekkert felmtrar fár, þinn friðr skín mér gegn um hvert mitt tár. Sjá, dauðans kyngi svelgt í sigr er ! Eg sigra, herra, búir þú hjá mér. 8. Er kvöldar hinnst, þú, Jesús mildi minn, mér mitt í dauða skín með krossinn þinn ! Sjá, lýsir guðsól, leysast myrkr hér ! í lífi’ og dauða, herra, bú hjá mér ! Ágrip af sögu „General Couneils“. Eftir séra Rúnólf Marteinsson. (Niðrlag*). Vér höfum áðr minnzt á tvö af stórmálum þeim, sem General Conncil hefir fjallað um: heiðingja-missíónina á Ind- landi og fagrt lúterskt guðsþjónustuform. þar fyrir utan eru ýmsar stofnanir og fyrirtœki, sem ann- aðhvort beinlínis hefir verið komið á fót af G. C. eða eru í sambandi við félagið. Meðal þeirra má nefna innflytjanda- heimili í New York, kvendjáknastofnanir og tvo prestaskóla, annan í Philadelphia og hinn í Chicago. Félagið gefr nú út eitt blað á ensku máli, er nefnist Thc Lutheran, og er víst óhætt að segja, þegar á allt er litið, að það er hið bezta lút- erska kirkjublað, sem birzt hefir á ensku tnáli í þessari heims- '*') Sjá ,,Sam.“ XIV, 8.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.