Sameiningin - 01.06.1900, Page 4
sunnudag. í fyrstu bókinni eru hinar einföldustu sögur úr
biblíunni; í hinni annarri yfirgripsrneiri biblíusögur ; í hinni
]?riöju biblíu-landafrœöi ; í hinni fjóröu æfisögur hinna merk-
ustu manna'í biblíunni ; í hinni fimmtu kenningar biblíunnar;
í hinni sjöttu ýmislegt snertanda hina bókmenntalegu hlið
biblíunnar. Meö þessu fyrirkomulagi er nemandinn leiddr
eðlilega, um leið og hann er að eldast og þroskast, frá hinu
auðvelda til hins örðugra, leiddr til þekkingar á ýmsum stig-
um, sem hvert tekr eðlilega við af öðru. Allt þetta fyrir-
komulag er samkvæmt mjög vel staðfestum kennslufrœðis-
legum grundvallarreglum.
það er því óhætt að segja, að síðan General Council fór
fyrir alvöru að sinna sunnudagsskólamálinu hefir rnikið verið
unnið.
Innan General Councils er talsverðr þjóðernislegr mis-
munr. þar eru þjóðverjar, Svíar og innfœddir Ameríku-
menn. Af þessu leiðir, að það er rnargt, sem hin einstöku
kirkjufélög geta gjört betr út af fyrir sig en G. C. í heild sinni
gæti. Til dœmis getr Agústana-sýnódan sœnska betr stýrt og
veitt stuðning sínum eigin sœnsku skólum og sínum sérstöku
rnissíónum heldr en nokkur annar annar gæti. Meðan svo
er ástatt verðr aðal-valdið að vera hjá hinum einstöku sýrr-
ódum, sem mynda félagsheildina, og G. C. þess vegna að
vera aðallega ráðstefna, eða ráðleggjandi fundr, sem þessi
félög hafa. Og það er einmitt það, sem G. C. er.
En ráðstefnur G. C.s hafa orðið lútersku kirkjunni í
Bandaríkjunum til mikillar blessunar. Brœðr hafa þar mœtt
brœðrum og hvorir haft styrk af öðrurn og um leið sameigin-
lega styrkzt í því að reynast lútersku kirkjunni trúir; og
ameríkanska þjóðin á fyrir bragðið hœgra með að skilja, hvað
lúterska kirkjan er mikið afi í landinu.
r
Frá Islandi.
Eftir séra Jónas A. SigiirJsson.
X.
Eg kom til Reykjavíkr seint að kvöldi dags, eftir slétta