Sameiningin - 01.06.1900, Qupperneq 5
53
og stutta sjóleiö úr Borgarnesi (eöa Brákarpolli eins og kaup-
túnið var áör nefnt), meö gufubátnum ,,Reykjavík“, fyrir
framan Akranes, Hvalfjörð og Kollafjörð. Fjöldi farþegja
var með gufubátnum, vafalaust um 300 manns, og er sá gufu-
bátaflutningr hið mesta þarfa-fyrirtoeki, eins og til hagar við
Island. Ekki fór eg í land á Akranesi, en þar þótti mér
fagrt til lands að sjá, og þar er ein prýðilegasta kirkja
landsins.
Dimmt var orðið, þegar til höfuðstaðarins var kornið, og
getr ]>ví vel verið, að kvöldskuggarnir eða nætrmyrkrið eigi
sinn þátt í því, komi einhver skuggahlið eða eitthvert svart-
sýni fram hjá mér í Jæssum endrminningum mínum um hinn
fyrsta og frægasta bústað á Islandi, höfuðstaðinn sjálfan.
Eitt hið fyrsta, sem maðr saknar í Reykjavík við slíka
aðkomu, eru ljós, góð ljós. það vardimmt yfir Reykjavík
þetta haustkvöld,—enginn stórborgar- eða starfsbragr yfir
bœnum, hvað það snerti. ])ó var mjög mannmargt við lend-
ingarstaðinn og eðlilega talsvert starf fyrir hendi, þegar slíkr
mannfjöldi, eftir íslenzkum mælikvarða, var að lenda. Síðan
tók eg einnig eftir því, að það var einmitt seint á kvöldum,
sem strætin í Reykjavík fylltust af fólki og veruleg umferð
byrjaði í bœnum,—eins og hann skyldi vera höfuðbœr í ein-
hverju heitu landi, þar sem umferð er ill-möguleg sökum hita
að deginum. Hér fannst mér þetta ofr lítið undarlegt. En
það ætti sannarlega að hvetja menn til að hafa bœinn sem
bezt lýstan. Hammerfest, hin nyrzta smáborg Norvegs, er
lýst með rafljósum, en það þykir barnaskapr, að hinn mann-
margi og að sumu leyti myndarlegi höfuðstaðr Islands eignist
nokkur rafljós. Og þó er það svo auðvelt, ef verkhyggni og
vilja skortir þar ekki.
Eg tók mér þetta nærri, því það minnti á margt annað
öfugstreymi, margskonar myrkr í þjóðlífi voru.
ísland er illa lýst af mönnunum, — í öllum skilningi og
allsstaðar, í borgum og bœjum, og eg held andlega sem lík-
amlega. þar skortir upplýsing, meiri og bctri ljós, og ])að er
vonandi, að þar ,,verði ljós“. En ekki má því gleyma, að
]?að er sem guð hafi gefið þessu blessaða landi voru og lýðnum