Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1900, Qupperneq 7

Sameiningin - 01.06.1900, Qupperneq 7
55 minn. Eg segi þetta eklci fyrir mig, heldr fyrir þaS og a5ra, er líkt stendr á fyrir eftirleiöis. þa5 er svo margt smávegis ónumiö enn, sem getr komiö sér vel að þekkja skil á og láta fara vel úr hendi. Ekki man eg, hvað oft eg leitaöist við að komast inn á hinn eina og op- inbera baðstað Reykvíkinga. En eg hitti svo á, að húsið var æfinlega harðlæst og maðrinn, sem gætti þess, fannst aldrei. Loks greiddi þó fyrrverandi baðhúsvörðr úr þeim vanda.— Engin rakarabúð var þá heldr til í Reykjavík, og er það harla einkennilegt fyrir jafn-fjölmennan og ,,fínan“ bœ sem Reykjavík óneitanlega er, að því er snertir íbúa hennar. En það sýnir bezt, hve öllum smá-iðnaði er þar lítt sinnt og hve seint útlend þægindi festa þar fót. —þjóðfélag — eða bœjarfé- lag—, sem ekki gefr gaum hinu smáa, nær aldrei hinu háa framfara-takmarki. Naumast getr bœjarstœðið í Reykjavík talizt verulega fallegt, ef borið er saman við hina mikilfenglegu náttúrufegrð Isiands á ýmsum stöðum. Húsaskipan er enn ekki sem reglu- legust ; allar gangstéttir vantar og götur höfuðstaðarins eru í rauninni engu betri en hinir nýju heiðavegir, sem reyndar víða eru ágætir. Mikið hefir í seinni tíð verið byggt af húsum f Reykjavík ; en fremr eru hin járnklæddu hús, sem svo mik- ið ber á, oft ómáluðum, kuldaleg útlits, innan um bera, gróðrlausa grjóturð. Rangt væri að segja, að ekki hafi verið unnið og byggt í Reykjavík, eftir því sem á Islandi tíðkast. Framfarir eru þar miklar, eins og margt er þó óneitanlega ervitt heima. Boerinn er í sannleika höfuðstaðr Islands í öllum skilningi, þó smáveg- is mætti þar betr fara, stœrri og myndarlegri höfuðstaðr fyrir ísland en mörg stórborg er í útlöndum, hlutfallslega við framfarir og ástand landanna. Reykjavík getr erígan veginn heitið lftill bœr, heldr stór í jafn-fámennu landi sem Island er.—Ymsar yngri byggingar í Reykjavík þola samanburð við margar slíkar byggingar í erlendum bœjum af líkri stœrð. Mörg urðin hefir þar verið gjörð að grœnni flöt og margr gleðilegr vottr um iðn og framför er augsýnilegr. Og höfnin

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.