Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1900, Blaðsíða 12

Sameiningin - 01.06.1900, Blaðsíða 12
öörum, aö eins af því þaö gefst vel hjá þeim. Vér verðum ætíö að spyrja, hvort þaö samsvari vorum sérstöku þörfum. Vér skulum nú minnast á fyrirkomulag það, sem almennt á sér stað á trúmálafundum hinna lútersku bandalaga í Bandaríkjunum. I blaði allsherjar félagsins, Lutlier League Rez’iezv, er allt af sérstök deild, er nefnist: ,, Luther League Topics“. það eru efni, sem valin eru til umrœðu á trúmála- fundum. þessi efni eru öll valin úr biblíunni. það eru mismunandi aðferðir við það að íhuga og kynna sér biblíuna. Ein er sú, að athuga hinar ýmsu bœkr hennar, í röð eða ekki í röð, og taka fyrir hvern kapítula á eftir öðr- um. Önnur er sú, sem nú tíðkast í sunnudagsskólunum, að taka ekki fyrir nema dálitla kafla, sundrslitna hvern frá öðr- um, en þó í sögulegu samhengi, svo að þeir gefi all-góða hug- mynd um innihald bókarinnar eða sögu tímabilsins, sem um er að rœða. þriðja aðferðin er sú, að taka fyrir sérstaka kafla til íhugunar án sögulegs samhengis, að eins vegna þess, að sú hugmynd, sem felst í köflunum, er nytsöm og vel fallin til að rœða um. þetta er fyrirkomulagið, sem á sér stað með efnavaiið í félögum reformeruðu kirkjunnar. Og að nokkru leyti á þetta sama sér stað með þessi umrœðuefni hinna lútersku bandalaga. En sá er munrinn, að þessi síð- asttöldu efni eru öll samhljóða hinu lúterska kirkjuári. Til útskýringar hverjum kafla, sem þannnig er valinn til íhugunar, er ætíð einn dálkr í blaðinu. Svo eru þessar út- skýringar prentaðar sérstaklega og seldar hinum ýmsu banda- lögum, sem kaupa vanalega nóg handa öllum meðlimum sínum. Sem sýnishorn setjum vér hér þýðing af einum slíkum út- skýringarkafia. Efnið er: María frá Magdala; og er ætlaðþeim fundinum, sem er næstr páskum. Fyrst eru, í sambandi við þetta aðalefni, valin efni í ritgjörðir, sem svo er ætlazt til að sé lesnar á fundinum. Ritgjörða-efnin eru þessi: Æfisaga Maríu frá Magdala. — Saintal drottins vors viS hana. — Hvcrnig konan getr þjánaff Kristi. —Lexíur páskanna. Útskýringarnar, sem á eftir koma, er ætlazt til að sé

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.