Sameiningin - 01.12.1903, Blaðsíða 2
146
svo hennar blóm til himins nær ?
Hún heitir Jesús, börn mín kær.
6. Hvert er þaö barn svo blítt og ungt,
sem ber svo margt og stórt og þungt
og felr heim í faömi sér ?
Það frelsari’ yðar, börn mín, er.
7. Þú heilagt barn, þú lýða ljós,
þú lífsins gull og himinrós !
þér englar syngja lofsöngsljóð ;
þá lofgjörð auki börnin góð.
Fagnaðarefni jólanna.
Jólahugleiðing eftir séra FriOrik Haligrírasson.
,,Óttizt ekki', því sjá, egflytytfr gleSiboSskap ttm mikinn
fögnuS, sem verSa mun fyrir allan lýSinn; því aS í dag er ySr
frelsari fœddr, sem er Kristr drottinn í borg DavíSs. Og
þetta se' merkiS fyrir ySr: þér munuS finna ttitgbarn reifaS
og liggjanda í jðtu“ (Lúk. 2, 10--12).
* *
Þetta var boðskaprinn, sem engillinn flutti hirðunum fyrir
utan Betlehem í fylling tímans. Nætrkyrrðin var allt í kring
um þá; menn voru gengnir til svefns inni í borginni; allir
ferðamenn voru komnir í náttstað; og þeir gjörðu ekki ráð
fyrir því að sjá aðrar lifandi verur þessa nótt en kindrnar, sem
þeir áttu að gæta. Og þess vegna varð þeim bilt við, þegar
allt f einu stóð hjá þeim engill drottins og dýrð drottins ljóm-
aði í kring um þá.
En engillinn hughreysti þá með því, að koma sín til
þeirra væri ekkert hræðsluefni fyrir þá, heldr kœmi hanu
þvert á móti til þess að flytja þeim þann boðskap, er væri
hið mesta fagnaðarefni.
FagnaSarefni — það er jólaboðskapr engilsins. Það var
hann, þegar hann fyrst var fluttr hirðunum, fyrir mörgum
öldum; það er hann enn í dag; og það mun hann verða með-
an jólahátíð er haldin á þessari jörð,