Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1903, Page 7

Sameiningin - 01.12.1903, Page 7
»5* og líísgleöina; því nóttin sr ávallt svæfandi; myrkriS deyfir mann. Þar sem því er mikiö myrkr, þarf aS vera mikiö af ljósi, sem stríöi á móti myrkrinu, svo ekki veröi lífið óbærilegt. Þess vegna eru menn alltaf að reyna að kveikja ljós í skammdegi lífsins. Þá er skammdegið í algleymingi, þegar sorgir og öfug- streymi lífsins kvelja huga manns, en einkum þá, þegar ekki sér til sólar guðs fyrir skýjum vantrúar og synda. Það er ömurlegt að vera einn á ferð í hríðarveðrum á svörtu nóttun- um núna í skammdeginu. Verra er þó að vera einmana og vonlaus andlega, og brjótast móti hríðarbyljum sálarstríðs og samvizkubits um hina dimmu nótt vantrúarinnar. Þess vegna þrá allir ljósið. Sumir góðir og vitrir menn eru einkennilega fávísir og barnalegir í sér, þegar þeir fara að fálma eftir andlegum ljósum. Margir menn leitast við að bera ljósið inn í sálar- híbýli sín á svipaðan hátt og gamla konan, sem ætlaði að bera sólskinið inn í húsið sitt í svuntu sinni. Líkt þessu fer þeim mönnum, sem ljósið vilja kveikja með eigin kröftum sínum og til þess vilja engin önnur ráð hafa en hugarburði sjálfra þeirra. Svo eru menn að reyna að lýsa upp með lömpum, sem iitla birtu bera. Það eru margir lampar til, en ekki mörg ljós, sem uppljóma sálu mannsins. Menntun er t. d. lampi, en hún ber ekki birtu inn í innsta herbergið í hjarta manns, þar sem guðsmynd mannsins sitr í böndum, eins og Jóhannes í myrkvastofunni. Og skynsemin er ljós, en ekki ljós, sem lýsir mannshjartanu út úr myrkri synda-ófriðarins og sýnir því frelsara. Það er ekki nema eitt ljós til fyrir synduga mannssálina. Þetta ljós er frelsarinn. ,,Það var hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, er kom í heiminn. “ Jólin boða þetta ljós : ,.í dag er yðr frelsari fœddr. “ Með ljós frelsarans koma jólin inn í myrkr skammdeg- isins. Og sjá! nóttin styttist, en dagrinn lengist um jóla-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.