Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1903, Qupperneq 9

Sameiningin - 01.12.1903, Qupperneq 9
153 Dr. Abbott segir um Jesúm: Aldrei reisti hann neitt hús; en í minning hans hafa fleiri skrauthýsi reist veriö en allra annarra samtalinna í mannkyns- sögunni. Aldrei reit hann eina línu í músík; en meira af mús- ík er af honutn innblásið en nokkrum 'áðrum manni. Ekk- ert málverk er til eftir hann, né hefir nokkurn tíma til verið; en málara-íþróttin fœddist um leið og hann. Ekki átti hann neitt við það að semja bœkr; en af anda hans eru innblásnar ágætustu og fegrstu bókmenntirnar, sem heimrinn hefir séð. Ekkert sérstakt endrbótarverk framkvæmdi hann; en allsstað- ar, þar sem kross hans hefir verið reistr upp, hefir þrældómr verið af numinn, stríðin orðið mannúðlegri, drepsóttir dvínað og dáið út. Gegnum blæju þessarar sívaxandi upplýsingar lítr kristinn maðr, og langt burtu á liðinni öld sér hann stjörn- una, sem birtan öll kemr frá, og trúir því, að í persónu hans, sem stjarnan táknar, fái hann svar upp á þetta bœnar-hróp: ,,Ó, að eg vissi, hvar eg get fundið guð!“ Hann veit, að það, sem Kristr var, er guð. Hann veit, að Kristr er dyrnar, sem vér förum í gegnum á leið vorri til guðs—inn í hjarta guðs, og í annan stað dyrnar, sem guð fer í gegn um, kom- andi til vor—inn í hjörtu vor. ----»—------------ Fyrir einu ári var eg staddr í .Spítala Sakleysingjanna’ í Florenz. I rökkr-birtunni þar hékk hið fagra málverk eftir Ghirlandajo: Austrlcnzku vitringarnir tilbiSjandi barniS heilaga. Austrheims-konungarnir með hinu glæsilega fylgd- arliði sínu eru þar sýndir eftir að þeir hafa kropið niðr fyrir ungbarninu, Jesú. Á baksviðinu sáust tvær yndislegar myndir af þörnum, sem klædd voru í gagnsæja búninga, er virtust vera úr hvítri ull, krjúpandi með spenntum greipum og glöðu yfirbragði. Þegar eg athugaði þær myndir betr, sá eg á hálsi barnanna rauða smábletti í líking blóðdropa, eins og væri það rúbínar í hálsbandi þeirra, og mátti af þessu ráða, að hinn gamli málari hafði ætlazt til, að myndir þessar skyldi tákna tvö þeirra saklausu barna, er dóu píslarvættisdauða í Betle- hem, og að hann hafði sett þau á myndina í því skyni, að þau skyldi þegjandi opinbera hugsanir hjarta hans viðvíkj- andi huggun þeirri, líkn og sáluhjálp, sem kom til hjálpar- lausra og þjáðra barna jarðarinnar með fœðing frelsarans. Og er eg svo með þessum inndælu hugsunum í sálu minni fór út úr kapellunni og gekk í gegn um garðsviðið víða þar fyrir utan, sem glóði í hita sumarsólarinnar, þá sá eg þar lík- amlega uppfylling spádóms þess, er málarinn hafði borið fram

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.