Sameiningin - 01.12.1903, Qupperneq 15
159
County, en um kvöldiö í Minneota. Veitti hann þá einnig
presti safnaöarins og nokkrum öðrum kvöldmáltíðar-sakra-
mentiö.
Að kvöldi næsta dags var alnrenn skemmtisamkoma
haldin í Minneota fyrir forgöngu kvenfélags St. Pálssafnaðar,
og var séra Rúnólfr þar helzti rœðumaðr, og talaði þá að nýju
út af forn-bókmenntum Islendinga.
í söfnuðinum í Marshali var trúmálsfundr haldinn þriðju-
dagskvöldið 24. Nóv. Sá söfnuðr er mjög fámennr, en nærri
allir safnaðarmenn voru viðstaddir. Umtalsefnið var hið
sama sem í Vestrheimssöfnuði, syndin. Auk prestanna tók
til máls einn leikmaðr, Jón Sigvaldason.
Næsta dag hélt séra Rúnólfr Marteinsson á staó heim-
leiðis, eftir að hafa unnið mikið og fagrt verk hér syðra.
Honum fylgdi innilegt þakklæti og einlægar fyrirbœnir brœðr-
anna í Minnesota. n.B. j.
Nýja testamentið íslenzka, sem hr. Fr. H. Jones hefir
látið gefa út og fengið hr. Halldóri S. Bardal til útsölu meðal
Vestr-íslendinga, er með tvennskonar myndum. Önnur teg-
und myndanna er með mörgum litum, og er sérstakt blað
fyrir hverja þeirra. Þær eru alls 20. Hinar allar, 38 að tölu,
eru dökkar; tvær og tvær þeirra á blaði, önnur framan á blað-
inu, hin aftan á. Hinar fyrrnefndu, skrautprentuðu, eru
þessar: Betanía við Olíufjallið, Austrlenzkt íbúðartjald,
Jerúsalem, Austrlenzkr kennari, Austrlenzkr vegr, Borgar-
hlið, Sólsetr, Stræti í Jerúsalem, ,,Bróðir hans var á akri“
(Lúk. 15, 25), Davíðsturn í Jerúsalem, Sikkem, A ferð í
Arabíu, Aþenuborg, ,,Eg beygi kné nn'n“ (Efes. 3, 14),
,,Stjarna er stjörnu bjartari“ (1. Kor. 15, 41), Sá sem
plœgir, Korinþuborg, Fjársjóðir Egyptalands, Eyjan Patmos,
Austrlenzkr fjárhirðir.—Dökk-prentuðu myndirnar eru þessar:
,,Biðjast fyrir á strætum“ (Matt. 6, 5), Borð peninga-víxlara
(21, 12), ,,Sá sem er á húsþaki“ (24, 17), Þvottr á kerum,
könnum og borðbekkjum (Mark. 7,4), Gefa vatnsdrykk vegna
Krists (9, 40), Við Genesaret-vatn—fiskimennirnir þvo net
sín (Lúk. 5, 1. 2), ,,Þér bindið mönnum lítt bærar byrðar“
(11, 46), ,,Hún kveikir ljós, sópar húsið og leitar vandlega“
(15, 8), ,,Hversem drekkr af þessu vatni“ o.s.frv. (Jóh. 4,
13), Uppskera, Fiskimenn við Tíberías (21, 1), ,,Uttilár-
innar“ (Pg. 16, 13), Tjaldgjörðarmenn, ,,Leiða lærisveinana
afvega“ (20, 30), ,,Spyrna móti broddunum“ (26, 14),
,,Uppfrœddr af lögmálinu“ (Róm. 2, 18), Leirsmiðrinn (9,
21), ,,Sá sem plantar og sá sem vökvar“ (1. Kor. 3, 8),