Sameiningin - 01.03.1904, Blaðsíða 6
3
5- Freistarinn þér blíðmáll býðr
brauð og upphefð, gull í mund;
en þú skalt þó engu’ að síðr
æ sem mest hans varast fund.
Til þín kominn ef hann er,
yfir Kedron flýttu þér.
6. Kedron er á allra vegi,
ei hann látum skelfa oss;
munum, að vér megum eigi
mögla, þótt vér berum kross.
Biðjum guð um stoð og styrk,
stríð ef þungt er, leiðin myrk.
Biblíufélagið brezka og erlenda varð eitt hundrað ára
gamalt 7. þ. m. Það er lang-mesta biblíufélag í heimi. A
hundrað ára æfi sinni hefir það gefið út svo margar biblíur, að
nemr i8omilíónum, á 400 tungumálum. Það er einn stór-
vægilegr þáttr í vísdómsráði drottins til þess að útbreiða ríki
hans til allra heimsins þjóða. Einnig vér Islendingar höfum
notið stór-mikils góðs af tilveru þess, því svo sem kunnugt er
hefir það gefið út biblíuna, sem íslenzkr almenningr hefir haft
í höndum sínum allan síðasta mannsaldr. Sunnudaginn 6.
Marz var í óteljandi kristnum kirkjum víðsvegar um lönd
minnzt hinnar miklu blessunar, sem leitt hefir af stofnan félags
þessa og samkvæmt bending félagsins drottni þakkað fyrir
gjöf orðsins. — Fyrir 100 árum gekk lítil stúlka ein í Wales
yfir fjöll og firrnindi 30 mílur til þess að kaupa sér biblíu.
Það atvik varð til þess, að hið mikla biblíufélag var stofnað (í
London). Og var frá upphafi um það hugsað ekki að eins að
bœta úr biblíuskortinum á Bretlandi, heldr og að birgja allt
fólk annarra landa hringinn í kring um jarðarhnöttinn með
guðs orði.
Trúarsamtalsfundir voru haldnir á þrem stöðum í Nýja
Islandi snemma í þessum mánuði (Maiz), hinn 8. (þrið.) um
miðjan dag í skólahúsinu að Geysi, hinn 9. eftir hádegi í Ar-
nesbyggð og sama dag að kvöldi í kirkjunni á Gimli. Um-
rœðuefnið §ama á öllum þeim fundum; skyldur foreldra