Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1904, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.03.1904, Blaðsíða 15
biblíu-‘kritíkin’ verða að gagni. Hún er einskonar veðrviti, er boðar væntanlegan storrn úr átt skynsemistrúarinnar, bendir á illveðrsskýið, sem enn að nýju er að rísa upp úr haí- inu. En það styðr hina sönnu biblíu-rannsókn, sem í hógværð hjartans heldr sér innan sinna réttu takmarka, og verðr henni hvöt til þess að standa enn betr á verði í þjón- ustu drottins. Og svo skulum vér að ending enn einu sinni festa augu vor á honum sjálfum, forráðanda safnaðarins, hinum san n- orða og t r ú a votti, Jesú Kristi, sem sett hefir innsigli sitt undir vitnisburð hinna helgu manna í ritningum gamla testa- mentisins. Vér endum þetta erindi vort með fyrirsagnarorð- urn ,, Biblíu-bandalagsins fyrir Norðrlönd“: ,,Hver óvin guðs skal óþökk fá,— hvert orð vors guðs skal standa; því oss er sjálfr herrann hjá með helgri gjöf síns anda. “ Heiðingjatrúboö. Eftir séra FriÖrik Hallgrímsson. Fyrir skömmu barst hingað frá Reykjavík ,,Fjallkonu“- blað frá 5. Des. f. á., og í því var grein með þessari fyrirsögn. Tilefni til þeirrar ritsmíðar hafa gefið höfundinum umrœður á síðustu sýnódus um heiðingjatrúboðið; og hann kemst að þeirri niðrstöðu eftir all-langar hugleiðingar um réttmæti heið- ingjatrúboðs yfir höfuð að tala og þann kostnað, er það hefir í för með sér, að vér, sem tókum þátt í þeim umrœðum, höf- um þar komið fram sem svo miklir einfeldningar eða trúœs- ingamenn, að hann er á báðum áttum með það, hvort hann á að hlæja að oss eða gráta. Það bæði hryggði mig og hneykslaði að sjá þessa grein í ,,Fjallkonunni“. Því þó að hún beri það með sér, að hún er rituð af manni, sem ber mjög lítið skynbragð á það mál, sem hann hefir tekið að sér að frœða lesendr blaðsins um, þá getr hún gjört illt engu að síðr. Hún getr að vísu ekki haft nein áhrif á skoðanir þeirra manna um þetta þýðingarmikla mál,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.